Fara í efni

Bæjarráð

27. fundur 21. nóvember 2024 kl. 13:00 - 14:48 í bæjarráðssal
Nefndarmenn
  • Steinunn Ingibjörg Magnúsdóttir formaður
  • Hrafnhildur Hallvarðsdóttir aðalmaður
  • Ragnar Már Ragnarsson
Starfsmenn
  • Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri
  • Þór Örn Jónsson bæjarritari
  • Gyða Steinsdóttir starfsmaður fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Þór Örn Jónsson bæjarritari
Dagskrá

1.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 39

Málsnúmer 2411005FVakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 39. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa.
Lagt fram til kynningar.

2.Skóla- og fræðslunefnd - 17

Málsnúmer 2411002FVakta málsnúmer

Lögð fram 17. fundargerð skóla- og fræðslunefndar.
Lagt fram til kynningar.

3.Æskulýðs- og íþróttanefnd (SH) - 4

Málsnúmer 2411004FVakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 4. fundar æskulýðs- og íþróttanefndar.
Lagt fram til kynningar.

4.Öldungaráð - 7

Málsnúmer 2411003FVakta málsnúmer

Lögð fram 7. fundargerð öldungaráðs.
Lagt fram til kynningar.

5.Skipulagsnefnd - 25

Málsnúmer 2411011FVakta málsnúmer

Lögð fram 25. fundargerð skipulagsnefndar.
Lagt fram til kynningar.

6.Safna- og menningarmálanefnd - 5

Málsnúmer 2411001FVakta málsnúmer

Lögð fram 5. fundargerð safna- og menningarmálanefndar.
Lagt fram til kynningar.

7.Atvinnu- og nýsköpunarnefnd (SH) - 4

Málsnúmer 2411009FVakta málsnúmer

Lögð fram 4. fundargerð atvinnu- og nýsköpunarnefndar.
Lagt fram til kynningar.

8.Dreifbýlisráð - 4

Málsnúmer 2411007FVakta málsnúmer

Lögð fram 4. fundargerð dreifbýlisráðs.
Lagt fram til kynningar.

9.Ágóðahlutagreiðsla 2024

Málsnúmer 2410020Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Brunabótafélagi Íslands vegna ágóðahlutagreiðslu 2024.
Lagt fram til kynningar.

10.Bókun frá stjórnarfundi Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga

Málsnúmer 2410021Vakta málsnúmer

Lögð fram bókun sem samþykkt var á stjórnarfundi Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 22. október 2024.
Lagt fram til kynningar.

11.Ályktun Skógræktarfélags Íslands - Vörsluskylda búfjár

Málsnúmer 2410022Vakta málsnúmer

Lögð fram ályktun Skógræktarfélags Íslands sem samþykkt var á aðalfundi félagsins sem fram fór dagana 30. ágúst - 1. september 2024.
Lagt fram til kynningar.

12.9 mánaða bráðabirgðauppgjör 2024

Málsnúmer 2411013Vakta málsnúmer

Lagt fram 9 mánaða bráðabirgðauppgjör 2024.
Lagt fram til kynningar.

13.Samningur á sviði endurhæfingar

Málsnúmer 2411032Vakta málsnúmer

Lagður fram samningur á sviði endurhæfingar milli Tryggingastofnunar, félagsþjónustu sveitarfélaga, VIRK - starfsendurhægingarsjóðs ses., Vinnumálastofnunar og heilsugæslustöðva.
Lagt fram til kynningar.

14.Skólastefna Stykkishólms

Málsnúmer 1610019Vakta málsnúmer

Skólastefna sveitarfélagsins lögð fram. Skólastefnan var tekin til umræðu á 17. fundi skóla- og fræðslunefndar. Nefndin taldi jákvætt hve mikið hefur nú þegar komið til framkvæmda af þeim atriðum sem talin voru helstu áskoranir í skóla- og frístundamálum sveitarfélagsins.
Lagt fram til kynningar.
Hjörleifur Kristinn Hjörleifsson formaður Snæfells kom inn á fundinn.

15.Samningur við Snæfell

Málsnúmer 1905032Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að uppfærðum samstarfssamning við ungmennafélagið Snæfell. Æskulýðs- og íþróttanefnd tók samningin til umfjöllunar á 4. fundi sínum. Nefndin tók vel í samninginn og hvatti til þess að hann yrði kláraður sem fyrst.



Formaður Snæfells kemur til fundar við bæjarráð.
Hjörleifur vék af fundi.

16.Sjálfbær atvinnusvæði á Vesturlandi

Málsnúmer 2411029Vakta málsnúmer

Lögð fram skýrsla KPMG um sjálfbær atvinnusvæði á Vesturlandi.
Lagt fram til kynningar.

17.Minnisblaðið til fjárlaganefndar um endurreisn kræklingaræktar

Málsnúmer 2411030Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað um endurreisn kræklingaræktar, sem sveitarfélagið sendi ásamt öðrum til fjárlaganefndar.
Lagt fram til kynningar.

18.Vetrarþjónusta

Málsnúmer 2202010Vakta málsnúmer

Lögð fram áætlun um snjómokstur sveitarfélagsins ásamt verklagsreglum um snjómokstur og hálkueyðingu gatna og gönguleiða. Þá eru lögð fram erindi sem borist hafa sveitarfélaginu vegna snjómoksturs, m.a. frá fulltrúum í Arnarborg og Birkilundi varðandi þjónustustig sveitarfélagsins.



Á 25. fundi sínum vísaði bæjarráð málinu til næsta bæjarráðsfundar.
Bæjarráð óskar eftir að vetrarþjónusta fyrir Helgafellssveit verði kynnt fyrir íbúum og verklagsreglur verði uppfærðar í samræmi við samtal við dreifbýlisráð.

19.Samningur um refaveiðar

Málsnúmer 2401025Vakta málsnúmer

Lagður fram samningur um refaveiða fyrir árin 2023 - 2025.



Dreifbýlisráð óskaði á 4. fundi sínum eftir umboði til viðræðna fyrir hönd sveitarfélagsins við veiðimenn vegna samninga um refa- og minkaveiðar í sveitarfélaginu og eftir atvikum gerð tillagna að reglum um veiðar á refum og minkum innan sveitarfélagsmarka.
Bæjarráð felur formanni dreifbýlisráðs, í samráði við ráðið, að ákveða hverjir munu sjá um minka og refaveiðar í sveitarfélaginu og leggja til við bæjarráð.

20.Erindi vegna fasteignagjalda

Málsnúmer 2411036Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi vegna fasteignagjalda að Smiðjustíg 3.
Bæjarráð samþykkir styrk vegna fasteignagjalda fyrir 2025.

21.Samkomuhúsið í Stykkishólmi við Aðalgötu 6

Málsnúmer 2006020Vakta málsnúmer

Safna- og menningarmálanefnd fól á 5. fundi sínum Jóni Ragnari Daðasyni að útfæra hugmyndir um næstu skref að uppbyggingu Samkomuhússins í Stykkishólmi og leggja fyrir safna- og menningarmálanefnd.
Afgreiðsla safna- og menningarmálanefndar samþykkt.

22.Rokkhátíð í Stykkishólmi

Málsnúmer 2305023Vakta málsnúmer

Þungarokkhátíðin Sátan fór fram í Stykkishólmi dagana 6.-9. júní 2024. Forsvarsmenn Sátunar koma til fundar við safna- og menningarmálanefnd á 5. fundi nefndarinnar.



Safna- og menningarmálanefnd þakkaði forsvarsmönnum Sátunnar fyrir fundinn og lýsti yfir vilja nefndarinnar til þess að Sátan verði árlegur viðburður í Stykkishólmi. Safna- og menningarmálanefnd hvatti til þess að leitað verði leiða til þess að ná sanngjarni niðurstöðu milli sveitarfélagsins og forsvarsmanna Sátunnar, m.a. varðandi aðstöðuleigu og að tryggt sé að viðbótarkostnaði sveitarfélagsins vegna hátíðarinnar sé mætt.
Bæjarráð vísar málinu til næsta bæjarráðsfundar.

23.Afmælishátíð Danskra daga 2024

Málsnúmer 2312003Vakta málsnúmer

Afmælishátíð danskra daga var haldin í ágúst vegna 30 ára afmælis hátíðarinnar. Mikil ánægja var með hátíðina í ár og umræður um tímasettningu hennar áberandi í samfélaginu.



Safna- og menningarmálanefnd teldi, á 5. fundi sínum, vert að skoða færslu á Dönskum dögum fram í ágúst þar sem það reyndist vel á afmælishátíð Danskra daga. Einnig taldi nefndin vert að skoða að halda Norðurljósahátíðina að ári aftur og þá yrði stefnt að Dönskum dögum árið 2026 næst. Safna- og mennignarmálanefnd vildi þó ekki útiloka að áhugi sé fyrir því að halda Danska daga á árinu 2025.



Safna- og menningarmálanefnd vísaði endanlegri afgreiðslu um afstöðu nefndarinnar í þessu sambandi til frekari vinnslu í nefndinni.
Afgreiðsla safna- og menningarmálanefndar vísað til næsta fundar.

24.Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld o.fl.

Málsnúmer 2411027Vakta málsnúmer

Lagt fram frumvarp til laga sem gerir m.a. ráð fyrir að leggja 2.500 króna innviðagjald á hvern farþega skemmtiferðaskipa fyrir hvern sólarhring sem siglt er við Íslands strendur.



Lagabreytingar gætu leitt af sér færri komur skemmtiferðaskipa til landsins og þá sérstaklega minni skipanna, sem hafa sótt heim minni byggðir á borð við Stykkishólm.



Einnig er lögð greinargóð yfirferð Bjargar Ágústsdóttur, bæjarstjóra Grundarfjarðarbæjar og fréttir af málinu.



Atvinnu- og nýsköpunarnefnd lagðist, á 4. fundi sínum, gegn þeim álögum sem taka eiga gildi um næstkomandi áramót, enda fyrirvarinn of skammur fyrir slíka gjaldtöku. Ef umrædd gjöld verða að veruleika eru verulegar líkur á stoðunum verði kippt undan lífæð Stykkishólmshafnar með tilheyrandi þjónustuskerðingu. Atvinnu- og nýsköpunarnefnd taldi nauðsynlegt að slík gjöld eigi að skila sér til nærsamfélaganna, þ.e. sveitarfélaganna.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu atvinnu- og nýsköpunarnefndar.

25.Sýslumaðurinn á Vesturlandi

Málsnúmer 2411028Vakta málsnúmer

Dómsmálaráðherra setti Birnu Ágústsdóttur, sýslumanninn á Norðurlandi vestra, tímabundið sem sýslumann á Vesturlandi, frá 1. júní sl. til og með 31. maí 2025. Tilefni setningarinnar var beiðni Ólafs Kristófers Ólafssonar, sýslumanns, um lausn frá embætti.



Atvinnu- og nýsköpunarnefnd skoraði, á 4.fundi sínum, á dómsmálaráðherra að auglýsa nú þegar starf Sýslumannsins á Vesturlandi, sem er með aðsetur í Stykkishólmi, laust til umsóknar.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu atvinnu- og nýsköpunarnefndar og vísar málinu til bæjarstjórnar.

26.Samgönguáætlun fyrir árin 2024-2038

Málsnúmer 2306027Vakta málsnúmer

Á 4. fundi atvinnu- og nýsköpunarnefndar voru samgöngumál innan sveitarfélagsinstekin til umræðu.



Atvinnu- og nýsköpunarnefnd skoraði á innviðaráðherra, Vegagerðina, þingmenn Norðvesturkjördæmis og umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis að leggjast á eitt um að færa framkvæmdir á um Snæfellsnesveg 54 um Skógarströnd framar á samgönguáætlun. Það er í raun ótækt að þessi ófjármagnaði STOFNVEGUR á láglendi, sem enn er að langt stærstum hluta MALAVEGUR, sá eini á Íslandi, sé ekki í sérstökum forgangi í samgönguáætlun.



Atvinnu- og nýsköpunarnefnd minnti í því sambandi á að Skógarstrandarvegur er hluti grunnnetsins samkvæmt samgönguáætlun og ætti því að vera forgangsatriði við ráðstöfun fjármuna á samgönguáætlun, líkt og markmið hennar kveða á um, en það endurspeglast hins vegar ekki í fyrirliggjandi drögum/tillögum að samgönguáætlun. Í raun er ótækt að þessi eini stofnvegur á láglendi á Íslandi, sem enn er malavegur, sé ítrekað látinn sæta afgangi við forgangsröðun fjármuna. Þess er í raun krafist að forgangsröðun fjármuna verði í samræmi við markmið samgönguáætlunar. Að mati nefndarinnar er hreinlega skömm að því að á Íslandi sé til staðar stofnvegur á láglendi sem enn sé malavegur.



Það er því óhjákvæmilegt að gera kröfu um að fyrirliggjandi samgönguáætlun verði breytt með tilliti til mikilvægis vegarins sem hluta af grunnneti samgöngukerfisins og framkvæmdum verði flýtt inn á fyrsta tímabil áætlunarinnar. Nefndin skoraði einnig á Vegagerðina að setja upp teljara á svæðinu svo hægt sé að auka þjónustu í samræmi við umferðarþunga. Einnig er lögð áhersla á endurbætur á Snæfellsnesvegi frá Borgarnesi inn á Snæfellsnes, sér í lagi að endurbætur á Snæfellsnesvegi 54 frá Brúarhrauni að Dalsmynni verði færðar framan í samgönguáætlun.



Einnig lagði atvinnu- og nýsköpunarnefnd þunga áherslu á að Stykkishólmsvegur 58 er ónýtur og óviðunandi, sér í lagi frá Stykkishólmi og að Vogsbotni, og er þess krafist að enduruppbygging vegarins verði sett í algjöran forgang.



Að öðru leyti vísaði nefndin í fyrri ályktanir sveitarfélagsins og umsagnir varðandi Snæfellsnesveg 54.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu atvinnu- og nýsköpunarnefndar og vísar málinu til bæjarstjórnar.

27.Ríkisstörf í Stykkishólmi

Málsnúmer 2411031Vakta málsnúmer

Störf á vegum ríkisins í Stykkishólmi voru tekin til umræðu á 4. fundi atvinnu- og nýsköpunarnefndar.



Atvinnu- og nýsköpunarnefnd krafðist þess að ríkið standi vörð um störf á vegum ríkisins í Stykkishólmi en þeim hefur fækkað á síðustu 10 árum þrátt fyrir að ríkisstörfum hafi fjölgað á Vesturlandi sem og á landsvísu. Nefndin taldi ljóst að ríkið hafi ekki staðið sig sem skyldi í að fjölga ríkisstörfum á landsbyggðinni, a.m.k. ekki í Stykkishólmi. Vísaði nefndir að öðru leyti til fyrri ályktana og umsagna sveitarfélagsins vegna þessa.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu atvinnu- og nýsköpunarnefndar.

28.Stykkishólmur í sókn - Efling atvinnulífs í Stykkishólmi

Málsnúmer 2107012Vakta málsnúmer

Lagt fram skilabréf starfshóps um eflingu atvinnulífs í Stykkishólmi ásamt lokaskýrslu þar sem tíundaðar eru tillögur hópsins atvinnulífi í Stykkishólmi til framdráttar.



Á 4. fundi atvinnu- og nýsköpunarnefndar benti nefndin á að starfshópur um eflingu atvinnulífs í Stykkishólmi skilaði af sér skýrslu árið 2022. Þar sem m.a. er lögð áhersla á að á frekari nýtingu svæðisbundinna náttúruauðlinda á sjálfbæran hátt og það verði gert með því að efla rannsóknir á lífríki sjávar. Til þess verði stofnað Þekkingar- og rannsóknarsetur við Breiðafjörð sem hafi það að meginmarkmiði að stuðla að auknu klasasamstarfi einstaklinga, atvinnulífs, stofnana og opinberra aðila þannig að stuðla megi að jákvæðri samfélags- og byggðaþróun á svæðinu, byggða á svæðisbundnum styrkleikum. Í sama streng tekur stýrihópur um framtíð verndarsvæðis Breiðafjarðar í skýrslu frá júní 2024.



Atvinnu- og nýsköpunarnefnd fagnaði stuðningi Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við verkefnið og lagði áherslu á mikilvægi þess að það verði stofnað á vormánuðum 2025 í samræmi við stuðning ráðuneytisins þar um.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu atvinnu- og nýsköpunarnefndar.

29.Samantekt og niðurstöður Breiðafjarðarnefndar um framtíð Breiðafjarðar

Málsnúmer 2011049Vakta málsnúmer

Lögð fram skýrsla um greiningu á verndargildi vernarsvæðis Breiðafjarða og áhrif þess, tækifæri og ógnanir, á samfélag, byggð og atvinnulíf, ásamt tengdum gögnum.



Atvinnu- og nýsköpunarnefnd fagnaði, á 4. fundi sínum, niðurstöðunni og batt vonir við að með þessari niðurstöðu hafi skapast mikilvæg sátt um framtíð Breiðafjarðar. Lykilþáttur í allri umræðu og sátt um framtíð Breiðarfjarðar er að rannsóknir á lífríki Breiðafjarðar verði stórauknar frá því sem nú er þannig að tryggja megi áfram sjálfbæra auðlindanýtingu fjarðarins.



Atvinnu- og nýsköpunarnefnd beindi því til matvælaráðherra, þingmanna Norðvesturkjördæmis og Hafrannsóknarstofnunar að stórauka rannsóknir á lífríki Breiðafjarðar.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu atvinnu- og nýsköpunarnefndar.

30.Stefnumörkun opinna grænna svæða innan bæjarmarka í Stykkishólmi

Málsnúmer 2110019Vakta málsnúmer

Lagt fram erindisbréf starfshóps um stefnumörkun opinna grænna svæða innan bæjarmarka í Stykkishólmi. Björn Ásgeir Sumarliðason, formaður hópsins, gerði grein fyrir vinnu hópsins á 4. fundi umhverfis- og náttúruverndarnefndar.



Umhverfis- og náttúruverndarnefnd þakkaði formanni hópsins fyrir greinargóða yfirferð yfir vinnu starfshópsins. Umhverfis- og náttúruverndarnefnd lýsti yfir áhuga nefndarinnar á að halda áfram vinnu starfshópsins.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórnar að fela umhverfis- og nátturuverndarnefnd frekari vinnu í samræmsi við vinnu starfshópsins.

31.Erindi frá Náttúrustofu Vesturlands

Málsnúmer 2402029Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Náttúrustofu Vesturlands vegna útbreiðslu lúpínu og efnistöku við Smáhraunakúlu í Helgafellssveit.



Umhverfis- og náttúruverndarnefnd þakkaði, á 4. fundi sínum, Náttúrustofu Vesturlands fyrir erindið, en hafði ekki forsendur, á þessu stigi máls, til að fjalla um þann hluta erindisins sem fjallar um efnistöku við Smáhraunakúlu.



Umhverfis- og náttúrverndarnefnd óskaði eftir því að forstöðumaður Náttúrustofu Vesturlands komi til fundar til að gera nánri grein fyrir erindinu. Nefndin vísaði þeim hluta erindis sem snýr að útbreiðslu alaskalúpínu til Umhverfisstofnunar, með vísan til 67. gr. náttúruverndarlaga.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu umhverfis-og náttuverndarnefndar.

32.Umhverfismál

Málsnúmer 2405007Vakta málsnúmer

Á 1. fundi bæjarstjórnar unga fólksins var bæjarstjórn hvött til að skoða möguleika á tvískiptum sorptunnum á ljósastaura og gefa þannig gangandi vegfarendum kost á að flokka sorp.



Bæjarráð vísaði, á 24. fundi sínum, hugmyndum um tvískiptar tunnur á ljósastaurum til vinnslu hjá umhverfis-og náttúrverndarnefndar í samráði við bæjarritara.



Umhverfis- og náttúruverndarnefnd hvatti, á 4. fundi sínum, til þess að sveitarfélagið setji upp aðra flokkunartunnu, sambærilega því sem er við hafnarvog, í grennd við íþróttamannvirki sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir að sett verði borgartunna í horni íþróttavallar við Aðalgötu og að koma þar með til móts við hugmyndir ungmennaráðs.

33.Hönnuður - umsókn um byggingaheimild eða -leyfi - Berserkjahraun - Flokkur 2

Málsnúmer 2411026Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn um byggingarheimild fyrir frístundahús á landi Berserkjahrauns; á einni hæð með kjallara að hluta, úr steinsteypu, einangrað að innan, gólfhiti og þak úr timbri. alls 290,5 m2 / 1133.8m3 L136925.



Á 39. fundi sínum vísaði byggingarfulltrúi málinu til skipulagsnefndar.



Bæjarstjórn Stykkishólms staðfesti á 20. fundi sínum afgreiðslu 17. fundar bæjarráðs þar sem ráðið taldi að mismunandi túlkun nefnda sveitarfélagsins á gr. 4.1 í aðalskipulagi Helgafellssveitar 2014-2024 gefi tilefni til að skerpa á texta greinarinnar, m.a þegar horft er til hvenær skuli deiliskipuleggja, á þeim svæðum þar sem er fyrirhuguð uppbygging. Á þetta við lögbýli og allt það land sem hefur verið stofnað úr þeim, gildir þá einu hvaða landnotkunarflokki það tilheyrir samkvæmt skilgreiningu 6. kafla skipulagsreglugerðar 90/2013. Bæjarráð samþykkti að fela skipulagsfulltrúa að vinna minniháttar breytingu á greininni en lagði áherslu á að þær byggingarheimildir sem eru nú þegar í gildandi aðalskipulagi Helgafellssveitar verði óbreyttar þar til að nýtt aðalskipulag fyrir sameinað sveitarfélag Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar, sem samþykkt hefur verið að hefja vinnu við, tekur gildi. Þar til umrædd aðalskipulagsbreyting hefur tekið gildi verða umsóknir um byggingarheimildir í dreifbýli metnar heilstætt hverju sinni þar sem sérstaklega verði hugað að hugsanlega bótaábyrgð sveitarfélagsins vegna málsmeðferðar sveitarfélagsins.



Samkvæmt Aðalskipulagi Helgafellssveitar 2012-2024 er á landbúnaðarsvæðum heimilt án þess að aðalskipulagi sé breytt að reisa fjögur stök íbúðarhús á jörðum eða jarðarspildum sem er 10 ha eða stærri og þrjú frístundahús á jörðum eða jarðaspildum. Fjöldi þegar byggða íbúðarhúsa eða frístundahúsa dragast frá heimildinni.



Skipulagsnefnd taldi, á 25. fundi sínum, þegar litið er á málið heilstætt, að nefndin hafi ekki forsendur til þess að leggjast gegn byggingarleyfinu á grundvelli ákvæða aðalskipulags. Áður en endanleg afstaða er tekin til erindisins óskar skipulagsnefnd eftir umsögnum um áfromin frá Minjastofnun og Umhverfisstofnun.



Skipulagsnefnd benti á, ef fyrirhugað er að fara í nýja veglagningu og teningu við tengiveginn, að samkvæmt 6. gr. reglugerðar nr. 772/2012, um framkvæmdaleyfi, skal sá sem óskar eftir framkvæmdaleyfi senda skriflega umsókn til sveitarfélagsins ásamt nauðsynlegum gögnum um fyrirhugaða framkvæmd. Í 7. gr. sömu reglugerðar er tiltekið hvaða gögn þurfi að liggja fyrir, þ.m.t. afstöðumynd hnitsett í mælikvarða 1:2.000 - 1:500 eða í öðrum læsilegum mælikvarða sem sýnir fyrirhugaða framkvæmd og afstöðu hennar gagnvart aðliggjandi byggð og að landi, hönnunargögn sem nauðsynleg eru til að framkvæma eftir, lýsingu á framkvæmd og hvernig hún fellur að gildandi skipulagsáætlunum og staðháttum, áliti Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum eða ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmdar ásamt þeim gögnum sem stofnunin byggði niðurstöðu sína á. Á grunni framangreinds óskaði skipulagsnefnd eftir þeim gögnum sem liggja þurfa fyrir samkvæmt 7. gr. reglugerðar um framkvæmdarleyfi og í framhaldinu verði óskað umsagnar Minjastofnunar, Vegagerðarinnar og Umhverfisstofnunar á fyrirhuguðum áformum áðurn en endanleg afstaða nefndarinnar liggur fyrir.

Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar, einnig er óskað umsagnar Skipulagsstofnunar. Jafnframt er erindinu vísað til bæjarstjórnar.

34.Jónsnes - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.

Málsnúmer 2411009Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn Jónsnes ehf. fyrir fuglaskoðunarhúsi úr timbri á steyptri plöt. Samhliða er sótt um framkvæmdaleyfi fyrir veg að húsinu. L136950



Á 39. fundi sínum vísaði byggingarfulltrúi málinu til skipulagsnefndar.



Bæjarstjórn Stykkishólms staðfesti á 20. fundi sínum afgreiðslu 17. fundar bæjarráðs þar sem ráðið taldi að mismunandi túlkun nefnda sveitarfélagsins á gr. 4.1 í aðalskipulagi Helgafellssveitar 2014-2024 gefi tilefni til að skerpa á texta greinarinnar, m.a þegar horft er til hvenær skuli deiliskipuleggja, á þeim svæðum þar sem er fyrirhuguð uppbygging. Á þetta við lögbýli og allt það land sem hefur verið stofnað úr þeim, gildir þá einu hvaða landnotkunarflokki það tilheyrir samkvæmt skilgreiningu 6. kafla skipulagsreglugerðar 90/2013. Bæjarráð samþykkti að fela skipulagsfulltrúa að vinna minniháttar breytingu á greininni en lagði áherslu á að þær byggingarheimildir sem eru nú þegar í gildandi aðalskipulagi Helgafellssveitar verði óbreyttar þar til að nýtt aðalskipulag fyrir sameinað sveitarfélag Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar, sem samþykkt hefur verið að hefja vinnu við, tekur gildi. Þar til umrædd aðalskipulagsbreyting hefur tekið gildi verða umsóknir um byggingarheimildir í dreifbýli metnar heilstætt hverju sinni þar sem sérstaklega verði hugað að hugsanlega bótaábyrgð sveitarfélagsins vegna málsmeðferðar sveitarfélagsins.



Samkvæmt Aðalskipulagi Helgafellssveitar 2012-2024 er á landbúnaðarsvæðum heimilt án þess að aðalskipulagi sé breytt að reisa fjögur stök íbúðarhús á jörðum eða jarðarspildum sem er 10 ha eða stærri og þrjú frístundahús á jörðum eða jarðaspildum. Fjöldi þegar byggða íbúðarhúsa eða frístundahúsa dragast frá heimildinni.



Skipulagsnefnd taldi, á 25. fundi sínum, þegar litið er á málið heilstætt, að nefndin hafi ekki forsendur til þess að leggjast gegn byggingarheimildinni á grundvelli ákvæða aðalskipulags. Skipulagsnefnd lagði áherslu á að húsið verði staðsett 50 m. frá sjó og að yfirlitsmynd sé í réttum kvarða. Áður en endanleg afstaða er tekin til erindisins óskaði skipulagsnefnd eftir umsögnum um áformin frá Minjastofnun, Umhverfisstofnun og Skipulagsstofnun.



Skipulagsnefnd benti á að samkvæmt 6. gr. reglugerðar nr. 772/2012, um framkvæmdaleyfi, skal sá sem óskar eftir framkvæmdaleyfi senda skriflega umsókn til sveitarfélagsins ásamt nauðsynlegum gögnum um fyrirhugaða framkvæmd. Í 7. gr. sömu reglugerðar er tiltekið hvaða gögn þurfi að liggja fyrir, þ.m.t. afstöðumynd hnitsett í mælikvarða 1:2.000 - 1:500 eða í öðrum læsilegum mælikvarða sem sýnir fyrirhugaða framkvæmd og afstöðu hennar gagnvart aðliggjandi byggð og að landi, hönnunargögn sem nauðsynleg eru til að framkvæma eftir, lýsingu á framkvæmd og hvernig hún fellur að gildandi skipulagsáætlunum og staðháttum, áliti Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum eða ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmdar ásamt þeim gögnum sem stofnunin byggði niðurstöðu sína á. Á grunni framangreinds óskar skipulagsnefnd eftir þeim gögnum sem liggja þarf fyrir samkvæmt 7. gr. reglugerðar um framkvæmdarleyfi og í framhaldinu verði óskað umsagnar Minjastofnunar og Umhverfisstofnunar á fyrirhuguðum áformum áðurn en endanleg afstaða nefndarinnar liggur fyrir.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar. Jafnframt er erindinu vísað til bæjarstjórnar.

35.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Skólastígur 6 - Flokkur 2,

Málsnúmer 2408034Vakta málsnúmer

Helga H. Sigurðardóttir sækir um leyfi fyrir stækkun á 13 m2 geymsluskúr við Skólastíg 6 og breyta honum í 22,7 m2 notarými, gestahús, geymslu og þvottahús. Þar sem að umsóknin samræmist ekki gildandi deiliskipulagi frá 2011, vísaði byggingarfulltrúi erindinu til skipulagsnefndar.



Skólastígur 6 er einbýli á tveimur hæðum reist á bilinu 1907-1920 í nýklassískri timburhúsagerð og er því friðað. Samkvæmt deiliskipulagi er lóðin 362 m2 og íbúðarhúsið 105 m2 (118 skv. HMS). Nýtingarhlutfall skv. deiliskipulagi er 0,33. Eitt bílastæði er á lóðinni en heimild er fyrir öðru. Í deiliskipulaginu er ekki heimild fyrir stækkun geymsluskúrsins en heimilt er að byggja nýjan 8 m2 geymsluskúr með hámarkshæð 2,8 m.



Skipulagsnefnd samþykkti, á 24. fundi sínum, fyrir sitt leyti að lóðarhafi láti vinna óverulega breytingu á deiliskipulagi í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin minnti á mikilvægi almennra skilmála deiliskipulagsins um stærðir, hlutföll og efnisval/notkun í gamla bænum. Þakform getur verið einhalla eða mænisþak.



Bæjarráð samþykkti afgreisðu skipulagsnefndar á 25. fundi sínum.



Skipulagsnefnd óskaði, á 25. fundi sínum, eftir að hæð byggingar verði bætt inn á skipulagsuppdráttinn og í framhaldinu að hann verði grenndarkynntur fyrir Skólastíg 8 og 10 skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar.

36.Reitarvegur - dsk br. v Reitarvegs 10

Málsnúmer 2409006Vakta málsnúmer

Sveitarfélagið sækir um að láta vinna breytingu á deiliskipulagi íbúðar- og athafnasvæðis við Reitarveg (2018 m.s.br. frá 2020) í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þó án skipulagslýsingar sbr. 1. mgr. 40. gr. og kynningar á vinnslustigi sbr. 4. mgr. 40. gr. laganna. Breytingin felst í að útbúa lóð utan um núverandi skemmu, sem í gildandi skipulagi er víkjandi. Sú lóð yrði þá Reitarvegur 10a og skemman ekki lengur víkjandi.



Skipulagsnefnd hafnaði, á 24. fundi sínum, umsókn um stofnun lóðar utan um skemmu og lagði til að settur verði tímarammi um niðurrif eða flutning skemmunnar.



Bæjarráð samþykkti, á 25. fundi sínum, afgreiðslu skipulagsnefndar, en óskaði þó eftir hugmyndinum nefndarinnar á hugsanlegum skipulagsbreytingum á svæðinu.



Skipulagsnefnd óskaði, á 25. fundi sínum, eftir tillögu að því hvernig lóðin Reitarvegur 10, sem í dag er 501 m2 að stærð fyrir verslun og þjónustu, verði skilgreind með sambærilegum hætti og Reitarvegur 8 og gerðar verði skipulagsbreytingar með það að markmiði að auglýsa lóðina lausa til úthlutunar.



Skipulagsnefnd vísaði öðrum hugmyndum að skipulagsbreytingum til framtíðar til frekari vinnslu í nefndinni.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með tveimur atkvæðum fulltrúa H-lista gegn einu atkvæði fulltrúa Í-lista.

37.Agustsonreitur - skipulagsbreyting

Málsnúmer 2302009Vakta málsnúmer

Bæjarráð samþykkti á 24. fundi sínum 14. ágúst sl. að kynna vinnslutillögur vegna breytingar á Aðalskipulagi Stykkishólms 2002-2022 og nýs deiliskipulags fyrir Agustsonreit í samræmi við 2. mgr. 30. gr. og 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með minniháttar uppfærslum í samræmi við umræður á fundinum.



Jafnframt samþykkti bæjarráð, í umboði bæjarstjórnar vegna sumarleyfa, að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi og nýtt deiliskipulag í samræmi við 31. gr. og 1. og 2. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að undangenginni yfirferð Skipulagsstofnunar sbr. 3. mgr. 30. gr. laganna berist engar stórvægilegar athugasemdir við vinnslutillögurnar sem taka þurfi til umfjöllunar fyrir auglýsingu.



Skipulagsnefnd samþykkti, á 24. fundi sínum, fyrir sitt leyti að kynna vinnslutillögu deiliskipulags fyrir Agustsonreit með minniháttar breytingum sem ræddar voru á fundinum m.a. að skoða lækkun á húsi framan við Sjávarpakkhús og aðkomuleiðir að bílageymsluhúsi þar sem óljóst er hvort um er að ræða eitt eða tvö bílageymsluhús.



Samhliða vinnslutillögu aðalskipulagsbreytingar og nýs deiliskipulags þarf einnig að kynna breytingu á gildandi deiliskipulagi miðbæjar austan Aðalgötu. Þar sem um mikilvæga breytingu er að ræða, sem kemur til með að hafa mikil áhrif á gamla bæinn, leggur nefndin til að haldnir verði opnir kynningarfundir í Amtbókasafninu þegar tillögurnar eru kynntar á vinnslustigi og þegar þær verða auglýstar.



Bæjarráð samþykkti afgreiðslu skipulagsnefndar á 25. fundi sínum.



Lögð fram endanleg vinnslutillaga til athugasemda og staðfestingar.



Skipulagsnefnd gerði, á 25. fundi sínum, ekki athugasemdir við fyrirliggjandi tillögur, eins og það liggja fyrir, verði kynntar í skipulagsgátt.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar.

38.Kallhamar - Skipulagsáætlanir (ASK br. og DSK)

Málsnúmer 2206035Vakta málsnúmer

Lögð er fram til afgreiðslu vinnslutillaga deiliskipulags fyrir grænan iðngarð við Kallhamar.



Skipulagsnefnd samþykkti, á 24. fundi sínum, að kynna vinnslutillögu fyrir athafnasvæði við Kallhamar í samræmi við 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með þeim minniháttar uppfærslum sem ræddar voru á fundinum. Kynna skal vinnslutillögurnar samhliða breytingu á aðalskipulagi eftir yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 3. gr. 30. gr. laganna og vinnslutillögu deilikipulags athafnasvæðis við Hamraenda.



Bæjarráð samþykkti afgreiðslu skipulagsnefndar á 25. fundi sínum.



Skipulagsnefnd óskaði, á 25. fundi sínum, eftir því að skipulagshönnuður og VSÓ ráðgjöf ljúki við greinargerð og umhverfisskýrslu í samræmi við umræður á fundinum.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar.

39.Hamraendar deiliskipulag

Málsnúmer 2406000Vakta málsnúmer

Lögð er fram til afgreiðslu vinnslutillaga deiliskipulags fyrir athafnasvæði við Hamraenda.



Skipulagsnefnd samþykkti, á 24. fundi sínum, að kynna vinnslutillögur fyrir athafnasvæðið við Hamraenda í samræmi við 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með þeim minniháttar uppfærslum sem ræddar voru á fundinum. Kynna skal vinnslutillögurnar samhliða breytingu á aðalskipulagi eftir yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 3. gr. 30. gr. laganna og vinnslutillögu athafnasvæðis við Kallhamar.



Bæjarráð samþykkti afgreiðslu skipulagsnefndar á 25. fundi sínum.



Skipulagsnefnd óskaði, á 25. fundi sínum, eftir því að skipulagshönnuður og VSÓ ráðgjöf ljúki við greinargerð og umhverfisskýrslu í samræmi við umræður á fundinum.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar.

40.Birkilundur - br á aðalskipulagi 2024

Málsnúmer 2309024Vakta málsnúmer

Lögð er fram samantekt umsagna og athugasemda sem bárust við vinnslutillögu breytingar á Aðalskipulagi Helgafellssveitar og vinnslutillögu nýs deiliskipulags fyrir íbúðar- og frístundasvæði í Birkilund í landi Saura, sem kynntar voru dagana 4.-28. júní sl.



Skipulagsnefnd taldi, á 25. fundi sínum, að athugasemdir gefi ekki tilefni til þess að breyta þurfi skipulagsuppdráttum.



Skipulagsnefnd lagði til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi og fela bæjarstjóra að senda svör til þeirra sem athugasemdir gerðu, senda tillöguna til yfirferðar skipulagsstofnunnar sem birtir auglýsingu um samþykkt skipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og bæjarstjóra að ganga svörum í skipulagshönnuði.

41.Birkilundur - nýtt deiliskipulag 2024

Málsnúmer 2209002Vakta málsnúmer

Lögð er fram samantekt umsagna og athugasemda sem bárust við vinnslutillögu breytingar á Aðalskipulagi Helgafellssveitar og vinnslutillögu nýs deiliskipulags fyrir íbúðar- og frístundasvæði í Birkilund í landi Saura, sem kynntar voru dagana 4.-28. júní sl.



Skipulagsnefnd taldi, á 25. fundi sínum, að athugasemdir gefi ekki tilefni til þess að breyta þurfi skipulagsuppdráttum.



Skipulagsnefnd lagði til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi tillögu að deiliskipulagi, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.



Að bæjarstjórn feli bæjarstjóra að senda svör til þeirra sem athugasemdir gerðu, senda tillöguna til yfirferðar skipulagsstofnunnar og að birta auglýsingu um samþykkt deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda eftir yfirferð skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og bæjarstjóra að ganga svörum í skipulagshönnuði.

42.Gjaldskrár 2025

Málsnúmer 2409029Vakta málsnúmer

Lagðar fram gjaldskrár sveitarfélagsins fyrir árið 2025, sem taka mið af forsendum fjárhagsáætlunar 2025-2028 sem samþykktar voru á 28. fundi bæjarstjórnar.



Á 29. fundi sínum samþykkti bæjarstjórn gjaldskrár fyrir Sveitarfélagið Stykkishólm fyrir 2025 og vísaði þeim til frekari umfjöllunar í bæjarráði, umsagnar í fastanefndum og til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrár með áorðnum breytingum og vísar þeim til frekari vinnslu í bæjarráði.

43.Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Stykkishólms 2025-2028

Málsnúmer 2410006Vakta málsnúmer

Lögð fram fjárhagsáætlun fyrir árin 2025-2028.



Á 29. fundi sínum samþykkti bæjarstjórn Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Stykkishólms 2025-2028 og vísaði henni til frekari umfjöllunar í bæjarráði, umsagnar í fastanefndum og til síðari umræðu í bæjarstjórn, ásamt fyrirliggjandi tillögum í aðgerðaráætlun um aukið aðhald í rekstri sveitarfélagsins.
Bæjarráð fjallaði um fjárhagsáætlun 2025-2028 og vísar henni til síðari umræðu í bæjarráði.

Fundi slitið - kl. 14:48.

Getum við bætt efni síðunnar?