Norska húsið - BHS
Norska húsið - Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla
Norska húsið er fyrsta tvílyfta íbúðarhús á Íslandi. Það var byggt úr tilsniðnum viði frá Noregi árið 1832 og er því rúmlega 180 ára gamalt. Í safninu er fastasýning á heimili Árna Ó. Thorlacius (1802–1891) og Önnu Magdalenu Steenback (1807–1894) eins og talið er að það hafi verið á seinni hluta 19. aldar. Í risi er opin safngeymsla með munum frá öllu Snæfellsnesi. Á fyrstu hæð eru breytilegar sýningar í Mjólkurstofu og Eldhúsi sem tengjast listum, menningu og/eða sögu svæðisins og safnbúð í krambúðarstíl.
Safnstjóri er Hjördís Pálsdóttir
Opnunartími
Frá 1. júní - 31. ágúst er opið alla daga frá kl. 11 - 17.
Frá 1. september opið alla daga frá kl. 13-16.
Staðsetning
- Hafnargata 5
- Sími 433 8114
- Netfang:info@norskahusid.is
- Fylgist með á Facebook
- Norska húsið - norskahusid.is