Sveitarfélagið Stykkishólmur
Ráðhúsið í Stykkishólmi - bæjarskrifstofur
Hafnargötu 3
340 Stykkishólmur
Sími: 433 8100
Netfang: stykkisholmur@stykkisholmur.is
Opið kl. 10:00 - 15:00 mánudaga til föstudaga.
Bæjarstjórn og bæjarráð hafa fundaraðstöðu í Ráðhúsinu. Nefndir bæjarins funda einnig í húsinu.
Minjavörður Vesturlands og Vestfjarða, Náttúrustofa Vesturlands og Háskólasetur Snæfellsness hafa aðsetur í Ráðhúsinu.
Sveitarfélagið Stykkishólmur er aðili að Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
- Markmið SSV er m.a. að vinna að hagsmunum sveitarfélaganna á Vesturlandi, einkum í atvinnu-, efnahags-, mennta-, skipulags-, samgöngu- og félagsmálum. Efla samstarf sveitarfélaganna og auka kynningu sveitarstjórnarmanna. Styrkja þjóðfélagslega aðstöðu landshlutans. Samtökunum er ætlað að starfa í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga eftir því sem við verður komið.
- Samband íslenskra sveitarfélaga vinnur að eflingu samstarfs íslenskra sveitarfélaga og að hvers konar hagsmunamálum þeirra. Verulegur hluti starfseminnar felst í hagsmunagæslu fyrir sveitarfélögin gagnvart ríkisvaldinu og öðrum innlendum og erlendum aðilum. Sambandið mótar stefnu sveitarfélaganna til einstakra mála og hefur því náin samskipti við ríkisstjórn og Alþingi.