Fréttir
Ný stúkusæti vígð við hátíðlega athöfn
Föstudaginn 17. ágúst s.l. voru ný sæti í stúkunni við Stykkishólmsvöll vígð fyrir leik Snæfells og Berserkja í 4. deild karla í knattspyrnu. Af því tilefni var Sigurþór Hjörleifsson fenginn til að klippa á borðann og um leið heiðraður fyrir framlag sitt til íþrótta undir merkjum Snæfells og HSH í gegnum tíðina.
20.08.2018