Fara í efni

Danskir dagar 2018

13.08.2018
Fréttir

Bæjarhátíðin Danskir dagar fer fram í Stykkishólmi dagana 17. ? 19. ágúst næstkomandi. Undirbúningur hefur gengið vel en skipulag hátíðarinnar er í höndum starfsmanna safnanna ásamt fleirum.

Dagskráin hefst með danskri krakkasmiðju á bókasafninu á þriðjudeginum. Í boði verður ýmis önnur afþreying fyrir börn á öllum aldri, má þar nefna, dorgveiðikeppni, þrautaleik, grillað verður Snobrød í Nýrækt og Húlladúllan mun sína listir sínar í Hólmgarði.

Á föstudagskvöldinu verður brekkusöngur og að honum loknum verður ball með hljómsveitinni Meginstreymi í reiðhöllinni. Dagskráin verður fjölbreytt á laugardeginum og má þar nefna markaðssvæði, boðið verður upp á æbleskiver og brjóstsykursgerð í Norska húsinu og hægt verður að fá leiðsögn um Eldfjallasafnið. Um kvöldið verður bryggjuball og flugeldasýning. Í lok kvölds verður stórdansleikur í íþróttamiðstöðinni þar sem hljómsveitin Buff mun leika fyrir dansi.

Á sunnudeginum er upplagt fyrir gesti hátíðarinnar að fara í skipulagða gönguferð upp Drápuhlíðafjall til að hressa sig við eftir dansleikinn. Styrktarfélagið Kraftur mun vera í Grunnskólanum. Þar verður hægt að perla armbönd með áletruninni ?Lífið er núna?. Félagið hefur það að leiðarljósi að beita sameinuðum kröftum sínum til að aðstoða og styðja ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þess. Viðburðurinn er haldinn í minningu Arndísar Höllu Jóhannesdóttur og Njáls Þórðarsonar.

Fyrir hönd undirbúningsnefndar, Hjördís Pálsdóttir

Getum við bætt efni síðunnar?