Frá Grunnskólanum í Stykkishólmi
Lausar stöður við Grunnskólann í Stykkishólmi
80-100% tímabundin staða íslenskukennara á unglingastigi frá 1. ágúst.
100% staða stærðfræðikennara á unglingastigi frá 1. ágúst .
80-100% staða umsjónar/grunnskólakennara, nokkrir möguleikar í boði. Frá 1. ágúst.
100% tímabundin staða umsjónarkennara frá 1. ágúst til 1. janúar.
Hæfniskröfur
? Kennsluréttindi á grunnskólastigi ásamt leyfisbréfi
? Leikni í mannlegum samskiptum og færni í að umgangast börn og unglinga
? Skipulagshæfni, stundvísi og frumkvæði
? Faglegur metnaður
? Áhugi og hæfni til að starfa í teymisvinnu
100% staða deildarstjóra deildarstjóra stoðþjónustu frá 1. ágúst 2018.
Hæfniskröfur
? Menntun í sérkennslufræðum og/eða reynsla af kennslu nemenda með sérþarfir
? Minnst 2 ára reynsla af starfi í grunnskóla
? Leikni í mannlegum samskiptum og færni í að umgangast börn og unglinga
? Skipulagshæfni, stundvísi og frumkvæði
? Góð tök á íslenskri tungu í ræðu og riti
? Faglegur metnaður
Ábyrgðarsvið
? Sérkennsla
? Gerð einstaklingsnámskráa og eftirfylgd með námi
? Samstarf við foreldra og fagaðila vegna málefna nemenda með sérþarfir
? Næsti yfirmaður stuðningsfulltrúa og kennara sem sinna sérkennslu
Stöðu umsjónarmanns í Regnbogalandi (heilsdagsskóli) frá 15. ágúst 2018
Hæfniskröfur:
? Aldurstakmark er 25 ára eða háskólapróf
? Áhugi á að vinna með börnum
? Krafist er íslenskukunnáttu
? Leikni í mannlegum samskiptum og færni í að umgangast börn og unglinga
? Tölvulæsi
Ábyrgðasvið:
? Skipuleggur starfið ásamt öðru starfsfólki
? Megin áhersla er lögð á velferð og vellíðan nemenda
? Tekur þátt í uppeldis ? og umsjónarstarfi og öðrum þeim störfum sem fram fara innan skólans.
? Veitir fyrstu hjálp ef slys eða óhapp ber að höndum.
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum Kennarasambands Íslands og viðeigandi stéttarfélags.
Í Grunnskólanum í Stykkishólmi eru 160 nemendur. Gleði ? samvinna ? sjálfstæði eru einkunnarorð skólans og störfum við eftir Uppeldi til ábyrgðar. Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir til að efla starfið enn frekar í þeim anda. Stykkishólmsbær eða ,,Bærinn við eyjarnar" er 1187 manna bær á Snæfellsnesi með fallega náttúru og öflugt mannlíf. Í Stykkishólmi er vottað heilsueflandi vatn í sundlauginni.
Láttu Hólminn heilla þig
Nánari upplýsingar um starfið veitir Berglind Axelsdóttir skólastjóri í síma 433 8178/895-3828 eða á netfangið berglind@stykk.is.
Skriflegum umsóknum skal skilað til skólastjóra ásamt ferilskrá fyrir 10. maí 2018.