Fara í efni

Fréttir

Jan Feb Mar Apr Maí Jún Júl Ágú Sep Okt Nóv Des
Starfsemi Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga (FSS)
Fréttir

Starfsemi Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga (FSS)

Líkt og aðrar stofnanir fylgir FSS leiðbeiningum og ákvörðunum stjórnvalda og stofnana frá degi til dags. Eftirfarandi eru ráðstafanir skv. tilkynningu frá FSS:
23.03.2020
Pistill bæjarstjóra vegna COVID-19 - 23. mars 2020
Fréttir

Pistill bæjarstjóra vegna COVID-19 - 23. mars 2020

Kæru Hólmarar og nærsveitungar. Hertar takmarkanir á samkomum taka gildi á miðnætti, mörkin eru nú sett við 20 manns. Þessar hertu reglur koma til með að hafa áhrif á okkur Hólmara eins og aðra íslendinga og ber þá helst að nefna að íþróttamiðstöð, sundlaug og söfnum bæjarins lokar, þar að auki hættir heilsuefling eldri borgara tímabundið. Skólastarf er undanskilið þessum aðgerðum en þó má gera ráð fyrir frekari tíðindum hvað það varðar á næstu dögum. Til að byrja með vil ég skila þakklæti til starfsmanna Stykkishólmsbæjar sem unnið hafa þrekvirki við að endurskoða og finna nýjar útfærslur á öllu okkar starfi í kjölfar neyðarástandsins sem nú ríkir, einnig vil ég þakka íbúum bæjarins og foreldrum leik- og grunnskólabarna sem tekið hafa aðstæðum af miklu æðruleysi. Okkar samheldna samfélag hefur unnið sem eitt í aðgerðum sínum við að hefta útbreiðslu veirunnar, við höfum aðlagað okkur að nýjum aðstæðum með bros á vör og sýnt hvert öðru skilning, samhug og stuðning. Við megum öll vera stolt af því að vera Hólmarar í dag.
23.03.2020
Íþróttamiðstöð, sundlaug og söfn loka
Fréttir

Íþróttamiðstöð, sundlaug og söfn loka

Hertar takmarkanir á samkomum taka gildi á frá og með þriðjudeginum 24. mars, mörkin eru nú sett við 20 manns. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis, að takmarka samkomur enn frekar en áður vegna hraðari útbreiðslu Covid-19 í samfélaginu. Viðburðir þar sem fólk kemur saman verða takmarkaðir við 20 manns í stað 100 áður. Við öll mannamót þarf auk þess að tryggja að nánd milli manna verði yfir tveimur metrum.
23.03.2020
Smit í Stykkishólmi er ekki innanlandssmit
Fréttir

Smit í Stykkishólmi er ekki innanlandssmit

Tveir einstaklingar hafa nú greinst með COVID-19 veiruna á Vesturlandi og er annað tilfellið í Stykkishólmi. Einstaklingurinn sem greindist hér í Stykkishólmi kom nýverið erlendis frá og fylgdi tilmælum yfirvalda um að fara beint í sóttkví við heimkomu, en hann greindist með veiruna á meðan á sóttkví stóð. Hann er nú í einangrun í samræmi við verklag þar að lútandi, en einangrun er fyrir þá sem eru með staðfest COVID-19 sýkingu en þurfa ekki á sjúkrahúsdvöl að halda. Þar sem viðkomandi fylgdi fyrirmælum sóttvarnarlæknis um að fara í tveggja vikna sóttkví við heimkomu, án tillits til hvaðan hann kom, mun hann ekki hafa átt í samskiptum við aðra í návígi frá því sóttkví hófst, þ.m.t. hér í Stykkishólmi.
22.03.2020
Í útikennslu á óvissutímum
Fréttir

Í útikennslu á óvissutímum

Á þessum undarlegu tímum sem við nú upplifum hefur aldeilis komið sér vel sú ákvörðun leikskólans að hefja útikennslu og nýta þannig svæðið okkar og mannauðinn í leikskólanum. Þarna höfum við auka kennslustofa sem tveir elstu árgangar leikskólans nýta sér í smáum hópum, hver hópur einn dag í viku. Í maí síðast liðnum hófust tilraunir með þessa kennslu sem hefur verið í sífelldri þróun síðan. Þessi mynd var tekin í hádeginu í dag þegar börnin fengu matarsendinguna sína, sjóðheita íslenska kjötsúpu og svo er auðvitað vel við hæfi að fá sér heitt kakó líka. Það er skemmst frá því að segja að börnin kunna vel að meta skógarferðirnar og þá dásemdar upplifanir sem Nýræktin okkar hefur upp á að bjóða.
18.03.2020
Skertur aðgangur að leikskólanum - áríðandi !
Fréttir

Skertur aðgangur að leikskólanum - áríðandi !

Leikskólinn vekur athygli á eftirfarandi: Allar heimsóknir og koma annarra en starfsmanna, foreldra/aðstandenda sem koma með og sækja börnin eru bannaðar og fleiri hömlur þar á sem foreldrar hafa fengið leiðbeiningar með. Þeir sem eiga brýnt erindi við leikskólann, s.s. þeir sem koma með aðföng, komi ekki lengra en inn í ganginn starfsmannamegin og láti vita af sér þar. Ef erindið er ekki býnt, bendum við á tölvupóstinn leikskoli@stykkisholmur.is eða símann 433-8128. Þeir sem hafa grun um að hafa orðið fyrir smiti eru vinsamlegast beðnir um að halda sig frá leikskólanum.
17.03.2020
Zawiadomienie urz?du miasta Stykkishólmur dotycz?ce ograniczenia edukacji z powodu epidemii COVID-1…
Fréttir

Zawiadomienie urz?du miasta Stykkishólmur dotycz?ce ograniczenia edukacji z powodu epidemii COVID-19.

Jak stwierdzono w mediach Minister Zdrowia postanowi? uruchomi? ?ród?a prawa dotycz?cych chorób zaka?nych które obejmuj? mi?dzy innymi ograniczenie edukacji przez cztery nast?pne tygodnie. W?adze miejskie i szkolne w Stykkishólmur pracuj? obecnie nad organizacj? zaj?? szkolnych itp.w tej niespotykanej sytuacji. Podj?to decyzj? ?e szko?a podstawowa jak i Regnbogaland b?d? zamkni?te 16 marca przez ca?y dzie? ale przedszkole b?dzie otwarte od godz.10:00.Szko?a muzyczna b?dzie otwarta ale prosi si? uczniów o przychodzenie pojedynczo na lekcje a po jej zako?czeniu natychmiast opu?ci? szko??. Prosimy ?ledzi? poczt? internetow? (email) jak równie? inne powiadomienia poniewa? informacje szybko si? zmieniaj?.
14.03.2020
Announcement from the town of Stykkishólmur because of reduction in school activities because of the…
Fréttir

Announcement from the town of Stykkishólmur because of reduction in school activities because of the outbreak (COVID-19).

As you have seen in the media, the minister for health has decided to activate laws that allow for measures against infectious diseases to be taken. This includes among other things, the possible reduction of school activities over the next four weeks. The town and school authorities in Stykkishólmur are now working on organising the schooling, considering these unprecedented circumstances. It has been decided, if the situation remains the same on Monday morning, that the elementary school and Regnbogaland will be closed the whole day of Monday the 16th of March to give staff time to prepare and organise, but the preschool will open at 10:00. The music school will be open, but students are asked to arrive to their lessons alone and leave the school immediately after the lesson. Please pay close attention to emails and other announcements, as things change very quickly these days.
14.03.2020
Tilkynning frá Stykkishólmsbæ vegna skerðingar á skólastarfi vegna farsóttar (COVID-19)
Fréttir

Tilkynning frá Stykkishólmsbæ vegna skerðingar á skólastarfi vegna farsóttar (COVID-19)

Tilkynning frá Stykkishólmsbæ vegna skerðingar á skólastarfi vegna farsóttar (COVID-19). Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að virkja heimildir sóttvarnalaga sem felur m.a. í sér að skólahald kunni að skerðast næstu fjórar vikur.
14.03.2020
Upplýsingasíða Stykkishólmsbæjar vegna COVID-19 (kórónaveirunnar)
Fréttir

Upplýsingasíða Stykkishólmsbæjar vegna COVID-19 (kórónaveirunnar)

Stykkishólmsbær hefur sett upp sérstaka upplýsingasíðu á heimasíðu bæjarins vegna COVID-19 (kórónaveirunnar). Á síðunni má finna samantekt tilkynninga Stykkishólmsbæjar í tengslum við COVID-19 veirunnar ásamt Viðbragðsáætlun Stykkishólmsbæjar við heimsfaraldri af völdum COVID-19, sem hefur þegar tekið gild og verið virkjuð. Á upplýsingarsíðunni er jafnframt safnað saman upplýsingum sem snúa að starfsemi sveitarfélaga almennt sem og upplýsingar sem margar hverjar eru aðgengilegar eru á vef Landlæknisembættisins eða Almannavarna.
13.03.2020
Getum við bætt efni síðunnar?