Fara í efni

Starfsemi Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga (FSS)

23.03.2020
Fréttir

Líkt og aðrar stofnanir fylgir FSS leiðbeiningum og ákvörðunum stjórnvalda og stofnana frá degi til dags. Eftirfarandi eru ráðstafanir skv. tilkynningu frá FSS:

? Helstu þjónustuþættir FSS eru virkir, þ.e. félagsþjónusta, barnavernd sem og grunnþjónusta sveitarfélaganna sem er undir verkstjórn og ábyrgð FSS, þ.e. félagsleg heimaþjónusta, liðveisla og akstursþjónusta.  Skólaþjónusta takmarkast tímabundið,- í samkomu- og gestabanni skólastofnana,-  við ytri ráðgjöf sérfræðiþjónustu við grunn- og leikskólanna, s.s. um síma, myndsíma, tölvupósta og net.

? Erfitt getur reynst að manna  frekari forföll starfsmanna heimaþjónustu sveitarfélaganna.  Gagn væri því að skráningu fleri ?bakvarða?  velferðarþjónustu, sem mætti leita til

? Dagþjónustur í Ásbyrgi, Stykkishólmi, og Smiðjunni, Ólafsvík, eru einungis opnar skjólstæðingum og starfsfólki. Aðgangur gesta þangað er óheimill til að varna útbreiðslu smits, þangað til annað verður ákveðið.

? Lokahátíð Stóru Upplestrarkeppni 7. bekkinga hefur verið frestað, en hún var áformuð í Stykkishólmskirkju 26. mars nk.

? Fundum sem ekki eru brýnir er frestað ef ekki er hægt að nýta fjar- og myndsímafundi  eða tölvupóst.

? Því miður liggur heimasíðan niðri vegna lagfæringa og endurgerðar sem stendur.

Þjónustusímar eru:
? Aðalnúmer    430 7800
? Smiðjan        433 8866
? Ásbyrgi        430 7809
?Barnavernd    112  (eftir kl. 16 virka daga, kvöld, helgar og hátíðardaga)

Getum við bætt efni síðunnar?