Fara í efni

Smit í Stykkishólmi er ekki innanlandssmit

22.03.2020
Fréttir

Tveir einstaklingar hafa nú greinst með COVID-19 veirunaá Vesturlandi og er annaðtilfellið í Stykkishólmi.

Einstaklingurinn sem greindist hér í Stykkishólmikom nýverið erlendis frá og fylgdi tilmælum yfirvalda um að fara beint ísóttkví við heimkomu, en hann greindist með veiruna á meðan á sóttkví stóð. Hanner nú í einangrun í samræmi við verklag þar að lútandi, en einangrun er fyrir þá sem eru meðstaðfest COVID-19 sýkingu en þurfa ekki á sjúkrahúsdvöl að halda.

 

Þar sem viðkomandi fylgdi fyrirmælum sóttvarnarlæknisum að fara í tveggja vikna sóttkví við heimkomu, án tillits til hvaðan hann kom,mun hann ekki hafa átt í samskiptum við aðra í návígi frá því sóttkví hófst,þ.m.t. hér í Stykkishólmi.

 

Umrætt tilvik er ágætt dæmi um að aðgerðirsóttvarnalæknis eru að skila árangri og er því áréttað mikilvægi þess að almenningurhaldi áfram að fylgja fyrirmælum og leiðbeiningum sóttvarnarlæknis.

 

Að lokum er rétt að minna íbúa á að fylgjastvel með fréttaflutningi og öðrum tilkynningum.

 

Á www.covid.is má svo finna upplýsingar umCovid-19 á Íslandi og allar nýjustu fréttir en að síðunni standaLandlæknisembættið og Almannavarnir.

 

Getum við bætt efni síðunnar?