Fréttir
Upplýsingasíða Stykkishólmsbæjar vegna COVID-19 (kórónaveirunnar)
Stykkishólmsbær hefur sett upp sérstaka upplýsingasíðu á heimasíðu bæjarins vegna COVID-19 (kórónaveirunnar). Á síðunni má finna samantekt tilkynninga Stykkishólmsbæjar í tengslum við COVID-19 veirunnar ásamt Viðbragðsáætlun Stykkishólmsbæjar við heimsfaraldri af völdum COVID-19, sem hefur þegar tekið gild og verið virkjuð.
Á upplýsingarsíðunni er jafnframt safnað saman upplýsingum sem snúa að starfsemi sveitarfélaga almennt sem og upplýsingar sem margar hverjar eru aðgengilegar eru á vef Landlæknisembættisins eða Almannavarna.
13.03.2020