Grunnskólinn í Stykkishólmi framlengir umsóknarfrest fyrir áður auglýstar stöður:
Stöður kennara frá 1. ágúst 2020:
100% tímabundin staða íþróttakennara
50% tímabundin staða dönskukennara á mið- og unglingastigi
Menntunar- og hæfniskröfur
? Leyfi til þess að nota starfsheitið kennari
? Leikni í mannlegum samskiptum og færni í að umgangast börn og unglinga
? Skipulagshæfni, stundvísi, frumkvæði og sjálfstæði
? Faglegur metnaður
? Áhugi og hæfni til að starfa í teymisvinnu
? Góðir samskiptahæfileikar
Í Grunnskólanum í Stykkishólmi eru 150 nemendur. Gleði ? samvinna ? sjálfstæði eru einkunnarorð skólans og þar er starfað eftir Uppeldi til ábyrgðar. Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir til að efla starfið enn frekar í þeim anda.
Láttu Hólminn heilla þig
Stykkishólmsbær er staðsettur á norðanverðu Snæfellsnesi og gjarnan kallaður ?bærinn við eyjarnar?. Í bænum búa ríflega 1200 manns, þar er öflugt íþróttastarf, blómlegt mannlíf, rík lista- og matarmenning og náttúrufegurð allt um kring. Stykkishólmur hefur á síðustu árum orðið að einum vinsælasta áfanga- og áningarstað landsins.
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum Kennarasambands Íslands og Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsness. Umsókn um stöðurnar skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. Fólk af öllum kynjum er hvatt til þess að sækja um.
Umsóknir skulu sendar á berglind@stykk.is. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Nánari upplýsingar um starfið veitir Berglind Axelsdóttir skólastjóri í síma 433-8178/895-3828 eða á netfangið berglind@stykk.is.
Umsóknarfrestur er til og með 10. júní 2020