Fréttir
Nýr Baldur kominn heim
Nýr Baldur er nú kominn til hafnar í Stykkishólmi og bíður þess að taka á móti gestum á milli kl. 15 og 17 í dag, en þá verðurformleg móttaka Baldurs haldin í Stykkishólmi. Gefst þá íbúum og öðrum áhugasömum kostur á að skoða nýju ferjuna og þiggja veitingar um borð. Á sunnudaginn 19.nóvember frá kl. 17 – 18 verður hægt að skoða ferjuna í Brjánslæk og þiggja veitingar sömuleiðis.
17.11.2023