Fara í efni

Auglýsing um álagningu fasteignagjalda hjá Stykkishólmsbæ 2019

05.03.2019
Fréttir

Álagningarseðlar fasteignagjalda fyrir árið 2019 verða ekki sendir út á pappír, heldur munu þeir verða aðgengilegir rafrænt í gegnum www.island.is Ef óskað er eftir því að fá álagningaseðil sendan, vinsamlega hafið samband við Þór Örn bæjarritara í 433-8100 eða netfangið thor@stykkisholmur.is

Greiðsluseðlar verða heldur ekki sendir út á pappír, nema þess sé sérstaklega óskað. Það má benda íbúum Stykkishólmsbæjar á íbúagattina á heimasíðunni www.stykkisholmur.is, þar geta íbúar nálgast alla sína reikninga frá bænum,  ef óskað er eftir því að fá senda greiðsluseðla vinsamlega hafið samband í síma 433-8100 eða netfangið thor@stykkisholmur.is

Gjalddagar fasteignagjalda verða níu á árinu 2019 eftirtaldir: 1. febrúar, 1. mars, 1.apríl, 1. maí, 1. júní, 1. júlí, 1. ágúst, 1. september og 1. október.

Lækkun fasteignaskatts á íbúðum elli- og örorkulífeyrisþega er reiknuð við álagningu fasteignagjalda. Afslátturinn er hlutfallslegur að teknu tilliti til allra skattskyldra tekna skv. skattframtali. Reglur um afslátt er með eftirfarandi hætti:

Einstaklingar með tekjubil                  0-3.688.252 kr.                         Fá 100% afslátt.

Einstaklingar með tekjubil                  3.688.253-4.052.616 kr.           Fá 75% afslátt

Einstaklingar með tekjubil                  4.052.617-4.448.434  kr.           Fá 50% afslátt

Einstaklingar með tekjubil                  4.448.435-4.824.097  kr.           Fá 25% afslátt

Einstaklingar með tekjubil                  4.824.098 kr.og hærra               Fá 0%   afslátt

 

Hjón/sambúðarfólk með tekjubil        0-6.231.361 kr.             Fá 100% afslátt

Hjón/sambúðarfólk með tekjubil        6.231.362-6.601.301 kr. Fá  75% afslátt

Hjón/sambúðarfólk með tekjubil        6.601.302-6.993.547 kr. Fá  50% afslátt

Hjón/sambúðarfólk með tekjubil        6.993.548-7.352.336                 Fá   25% afslátt

Hjón/sambúðarfólk með tekjubil        7.352.337 kr. og hærra              Fá     0% afslátt

 

Hámarksafsláttur af fasteignaskatti verður ekki hærri en 93.525 kr.

Ekki er þörf á að sækja sérstaklega um þennan afslátt.

 

Hægt er að senda fyrirspurnir á netfangið thor@stykkisholmur.is eða hringja í síma 433-8100

Getum við bætt efni síðunnar?