Umsagnarbeiðni - Gististaður að Reitarvegi 8
Málsnúmer 2403022
Vakta málsnúmerBæjarráð - 21. fundur - 18.04.2024
Embætti Sýslumannsins á Vesturlandi óskar eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar Hafnargötu ehf. um rekstrarleyfi til reksturs gististaðar í flokki II, íbúðir, sem rekinn verður sem Verbúð að Reitarvegi 8 í Stykkishólmui.
Bæjarráð óskar eftir umsögn skipulagsfulltrúa áður en afstaða er tekin til málsins.
Bæjarráð - 23. fundur - 20.06.2024
Embætti Sýslumannsins á Vesturlandi óskar eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar Hafnargötu ehf. um rekstrarleyfi til reksturs gististaðar í flokki II, íbúðir, sem rekinn verður sem Verbúð að Reitarvegi 8 í Stykkishólmi.
Bæjarráð óskaði, á 21. fundi sínum, eftir umsögn skipulagsfulltrúa áður en afstaða er tekin til málsins. Umsögn skipulagsfulltrúa er nú lögð fram.
Bæjarráð óskaði, á 21. fundi sínum, eftir umsögn skipulagsfulltrúa áður en afstaða er tekin til málsins. Umsögn skipulagsfulltrúa er nú lögð fram.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við veitingu rekstrarleyfis til Hafnargata ehf, að því gefnu að fyrir liggi skriflegt samþykki allra eigenda fasteignarinnar í samræmi við umsögn skipulagsfulltrúa.