Fara í efni

Vonskuveður

10.12.2019
Fréttir

Eflaust hafa vindar og fréttir af veðri ekkifarið framhjá neinum þennan morguninn, en appelsínugul viðvörun er í gildi áBreiðafirði og Snæfellsnesi. Gera má ráð fyrir að veður versni þegar líður ádaginn en veðrið hefur nú þegar sett mark sitt á þjónustuí Stykkishólmi.

Grunnskólastarfi var slitið kl. 10, útibú Arion banka í Stykkishólmi lokaði kl. 12, Amtsbókasafnið er lokað í dag og Gámastöðin Snoppa einnig. Þá hefur báðum ferðum ferjunnar Baldurs verið aflýst sem og ferð Særúnar sem hefði verið kl. 11 í morgun.

Getum við bætt efni síðunnar?