Fara í efni

Vinnuskólinn hefur lokið störfum í sumar

18.08.2022
Fréttir

Föstudagurinn 12. ágúst síðastliðinn var síðasti vinnudagur sumarsins hjá vinnuskólanum. Af þvi tilefni var ungmennum komið á óvart og boðið á kayak, farið í leiki og grillað í lok dags.

Starfsfólki eru færðar þakkir fyrir frábæra vinnu í sumar og þeirra framlag við að halda umhverfinu okkar snyrtilegu. 

Flokkstjórar sumarsins voru þau Agatha Ýr Gunnarsdóttir og Ágúst Nils Einarsson Strand og óhætt að segja að vinnuskólinn hafi verið heppinn að krækja í þau. Þeim eru færðar þakkir fyrir vel unnin störf í sumar.

Hér að neðan má sjá myndir frá deginum.

Getum við bætt efni síðunnar?