Viðvera atvinnuráðgjafa SSV í Stykkishólmi
Atvinnuráðgjafi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi verður með skipulagða viðtalstíma í Ráðhúsinu í Stykkishólmi fyrsta mánudag hvers mánaðar í allan vetur.
Helga Guðjónsdóttir atvinnuráðgjafi verður með fyrsta viðtalstíma næstkomandi mánudag, 2. september, kl. 13:00 - 15:00. SSV ? þróun og ráðgjöf er hluti af stoðkerfi atvinnulífsins og veitir ráðgjöf á sviði atvinnumála og vinnur að þróun búsetuskilyrða á starfssvæði Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi.
Helga verður með viðveru í Ráðhúsinu í Stykkishólmi eftirfarandi daga:
2. september kl. 13:00 - 15:00
7. október kl. 13:00 - 15:00
4. nóvember kl. 13:00 - 15:00
2. desember kl. 13:00 - 15:00
6. janúar kl. 13:00 - 15:00
3. ferbúar kl. 13:00 - 15:00
2. mars kl. 13:00 - 15:00
6. apríl kl. 13:00 - 15:00
4. maí kl. 13:00 - 15:00