Fara í efni

Viðvera atvinnuráðgjafa og menningarfulltrúa SSV

10.03.2023
Fréttir

Helga Guðjónsdóttir, atvinnuráðgjafi SSV, og Sigursteinn Sigurðsson, menningarráðgjafi SSV, verða í Ráðhúsi Stykkishólms þriðjudaginn 14. mars frá kl. 10:00 - 12:00.
Verkefni atvinnuráðgjafa felast í að vera einstaklingum, fyrirtækjum og sveitarstjórnum til aðstoðar á sviði atvinnumála. m.a. er veitt:

  • aðstoð við að greina vandamál
  • leiðbeiningar um hvar er hægt að fá aðstoð, bæði fjárhagslega og tæknilega frá
  • stoðkerfum atvinnulífsins
  • aðstoð við gerð umsókna til sjóða
  • aðstoð við gerð rekstraráætlana
  • aðstoð við markaðsmál

Helga Guðjónsdóttir, sími: 895-6707, netfang: helga@ssv.is

Menningarfulltrúi vinnur að ýmsum samstarfsverkefnum og ráðgjöf varðandi menningarmál. Menningarfulltrúi starfar með uppbyggingarsjóðnum og veitir umsækjendum um menningarstyrki upplýsingar og ráðgjöf. Menningarfulltrúi vinnur einnig með fagráði menningarmála að tillögu um úthlutun menningarstyrkja úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands og heldur utan um samskipti við styrkþega sjóðsins. Mörg áhugaverð og fjölbreytt verkefni hafa hlotið menningarstyrki, auk þess sem veittir hafa verið styrkir til stofnana og fyrirtækja sem vinna að menningarmálum.

Sigursteinn, sími: 698-8503, netfang: sigursteinn@ssv.is

Ráðhúsið í Stykkishólmi
Getum við bætt efni síðunnar?