Fara í efni

Við minnum á sérstaka styrki til barna frá tekjulágum heimilum

19.11.2020
Fréttir
Opnað fyrir umsóknir á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrk vegna áhrifa af Covid19 

Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar samþykkti á fundi sínum í október reglur Stykkishólmbæjar um úthlutun sérstakra íþrótta- og tómstundastyrkja fyrir börn á tekjulágum heimilum skólaárið 2020-2021. Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrkjum þar sem markmiðið er að jafna tækifæri þeirra til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Styrkirnir koma til viðbótar hefðbundnum íþrótta- og tómstundastyrkjum sveitarfélaga. Alls verður um 900 milljónum króna varið í verkefnið árin 2020 og 2021 en Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, kynnti aðgerðina í vor og er hún hluti af aðgerðapakka sem ætlað er að veita mótvægi vegna þeirra áhrifa sem Covid-19 faraldurinn hefur haft á afkomu efnaminni heimila í landinu. Í framhaldinu verður ráðist í vitundavakningu í samstarfi við menntamálaráðuneytið, sveitarfélög, Íþróttasamband Íslands og Ungmennafélag Íslands.

Styrkurinn er 45.000 kr á hvert barn.

Hægt er að sækja um styrk fyrir börn sem fædd eru á árunum 2005-2014 og búa á heimili þar sem heildartekjur heimilisins voru að meðaltali lægri en 740.000 kr. á mánuði á tímabilinu mars ? júlí 2020. Styrkurinn er 45.000 kr. á hvert barn og um 13.000 börn eiga rétt á styrknum.

Styrkina er hægt er að nota til  niðurgreiðslu á þátttökugjöldum vegna íþróttaiðkunar, tónlistanáms eða annarra tómstunda. Sveitarfélög setja reglur um úthlutun styrkjanna en fyrirkomulag getur verið breytilegt á milli sveitarfélaga til dæmis varðandi hvaða íþrótta- og tómstundastarf er styrkhæft, hvaða gögnum beri að skila með umsókn og afgreiðslutími umsókna.

Sveitarfélögin annast afgreiðslu styrkumsókna eftir að búið er að kanna rétt til styrksins inni á Ísland.is

Hér getur þú kannað rétt á styrk á Island.is.

Rannsóknir hafa sýnt að mikilvægt er að halda sem flestum börnum virkum í íþrótta- og frístundastarfi og tryggja jafnt aðgengi barna og unglinga að slíku starfi. Lögð hefur verið áhersla á að ná til sem flestra forráðamanna og hefur því verið komið af stað kynningarátaki á fjölda tungumála um íþrótta- og tómstundastyrkina.

Ásmundur Einar Daðason, félags-og barnamálaráðherra: ?Covid-19 faraldurinn hefur haft gríðarleg áhrif á allt íþrótta- og tómstundastarf í landinu. Þegar þrengir að fjárhag fjölskyldna er mikil hætta á að þær dragi úr þátttöku barna í íþrótta- og tómstundastarfi og það á sérstaklega við um fjölskyldur í neðri hluta tekjudreifingarinnar. Rannsóknir sýna að íþróttir og frístundir hafa forvarnargildi og því er gríðarlega mikilvægt að við gerum allt sem við getum til að koma í veg fyrir brottfall hjá krökkum í íþróttum og tómstundum vegna faraldursins.?

Umsóknir

Allar umsóknir þurfa að berast Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga fyrir 1. mars 2021 á skrifstofu við Klettsbúð 4 á Hellissandi eða á netfangið: fssf@fssf.is

HÉR MÁ NÁLAGST UMSÓKNAREYÐUBLAÐ
HÉR MÁ NÁLGAST MINNISBLAÐ BÆJARSTJÓRA ÁSAMT REGLUM STYKKISHÓLMBÆJAR UM ÚTHLUTUN SÉRSTAKRA ÍÞRÓTTA- OG TÓMSTUNDASTYRKJA FYRIR BÖRN Á TEKJULÁGUM HEIMILUM SKÓLAÁRIÐ 2020-2021

Getum við bætt efni síðunnar?