Fara í efni

Uppbyggingarsjóður Vesturlands hefur opnað fyrir umsóknir

19.10.2022
Fréttir

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í uppbyggingarsjóð Vesturlands. Úthlutað verður í janúar 2023.

Tilgangur Uppbyggingarsjóðs er að styrkja annars vegar menningarverkefni og hinsvegar atvinnu- og nýsköpunarverkefni á Vesturlandi. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og eru umsóknir metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem koma fram í Sóknaráætlun Vesturlands.

Í þessari úthlutun eru:

  • Styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar
  • Verkefnastyrkir til menningarmála
  • Stofn- og rekstrarstyrkir til menningarmála

Reglur um sjóðinn má finna hér.

Reglur og viðmið varðandi styrkveitingar má finna hér.

Aðstoð við umsóknir veita eftirfarandi aðilar.

Vegna atvinnu- og nýsköpunarverkefna:
Ólafur Sveinsson olisv@ssv.is 892-3208
Ólöf Guðmundsdóttir olof@ssv.is  898-0247
Helga Guðjónsdóttir helga@ssv.is 895-6707

Vegna menningarverkefna:
Sigursteinn Sigurðsson sigursteinn@ssv.is 698-8503

UMSÓKNARFRESTUR ER TIL OG MEÐ 17. NÓVEMBER 2022

Rafræn umsóknargátt

Getum við bætt efni síðunnar?