Umsóknir um búsetu í þjónustuíbúðakjarna FSS
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir eftir umsóknum um búsetu í þjónustuíbúðakjarna fólks með fötlun að Ólafsbraut 62 – 64 í Ólafsvík. Um er að ræða 2 einstaklingsíbúðir með stuðningsþjónustu sem felur í sér aðstoð og leiðsögn til sjálfstæðrar búsetu í eigin íbúð.
Umsækjendur uppfylli neðangreind skilyrði:
- Eigi lögheimili á Snæfellsnesi
- Er 18 ára eða eldri
- Er virkur notandi dagþjónustustöðva FSS og/eða í atvinnu með stuðningi
- Hafi metna þjónustuþörf í 6. flokki SIS eða hærri
- Að staðfest fötlunargreining Greiningar- og ráðgjafarstöðvar liggi fyrir
Umsóknir berist Jóni Hauki Hilmarssyni, forstöðumanni og fagstjóra þjónustu við fólk með fötlun, í þjónustuíbúðakjarnann eða á netfangið jonhaukur@fssf.is.
Umsóknarfrestur er til 20. janúar 2023.
Hægt er að panta tíma til skoðunar hjá forstöðumanni í síma 430 7812.