Fara í efni

Umhverfismál á Snæfellsnesi

11.12.2018
Fréttir

Fyrir tæpum 20 árum ákváðum við Snæfellingar sameiginlega aðstanda vörð um umhverfið. Við ákváðum að hvert lítið skref skipti máli ?mikilvægast væri að byrja að stíga þau. Sveitarfélögin fimm á svæðinumynduðu með sér bandalag og hófu að gera umbætur í starfsemi sinni ogmiðla fræðslu til íbúa. Eftir nokkurra ára undirbúning fengusveitarfélögin óháða vottun fyrir frammistöðu í umhverfis- ogsamfélagsmálum og frá árinu 2008 höfum við fengið slíka vottun árlega.Mikilvæg framfaraskref hafa náðst, en margt viljum við þó gera ennbetur. Markmiðið er skýrt; að axla ábyrgð á neysluvenjum okkar og dragaúr þeim áhrifum sem við höfum á umhverfið. Snæfellsnes er einstaktsvæði, ríkt af auðlindum og einstökum náttúruperlum, sem við viljumgæta.

Það var á Snæfellsnesi sem fyrst var byrjað að flokka heimilissorp áÍslandi, árið 2008, og í dag er heimilissorp flokkað í öllumsveitarfélögunum fimm. Á svæðinu er m.a. þriggja tunnu flokkun þar semlífrænt og endurvinnanlegt efni er aðskilið frá sorpi sem sent er íurðun. Þar eru íbúarnir í lykilhlutverki. Við flokkum meira og betur entil dæmis höfuðborgarsvæðið og teljum að stærri sveitarfélög geti litið áokkur sem fyrirmynd. Við erum líka alltaf til í að miðla af reynsluokkar. Markviss flokkun sorps er undirstaða endurvinnslu. Við höfum náðsífellt betri tökum á meðhöndlun á plastúrgangi og höfum aukið hlutfallflokkaðs sorps frá því að flokkun hófst og af öllu sorpi á Snæfellsnesifara tæp 50% beint í endurvinnslu. Við höfum minnkað notkun á plasti,m.a. með því að nota margnota burðarpoka í stað hefðbundinna plastpoka. Íþví höfum við náð ágætum árangri en höldum áfram að gera betur. Börnineru bestu sendiherrar umhverfisins vegna þess að í skólunum eru þaufrædd um umhverfismál, auðlindir og sérkenni svæðisins. Þetta gerum viðm.a. í gegnum Grænfánaverkefnið og virka átthagafræðikennslu. Á hverjuári taka heimamenn sig saman, félagasamtök, sveitarfélög og fleiri, oghreinsa rusl meðfram vegum og strandlengju Snæfellsness. Á Snæfellsnesier ýtt undir ábyrga efnanotkun, íbúar fræddir um orkusparnað, ekki síst íhúshitun, og stofnanir sveitarfélaga kaupa fyrst og fremstumhverfismerktar hreinsivörur, hreinlætisvörur og pappír. Að versla íheimabyggð er sömuleiðis markmið, m.a. þar sem kolefnisspor vöru erlágmarkað með þeim hætti.

Þjóðir heims standa frammi fyrir gríðarstórum áskorunum íumhverfismálum og plastnotkun er einungis brot af þeim. Við þurfum öllað leggja okkar af mörkum eigi árangur að nást. Snæfellingar eru ábyrgirog framsýnir og við ætlum okkur að gera miklu betur. Næstu skref okkar íumhverfismálum snúa m.a. að því að draga enn frekar úr neyslu ogsorpmagni, auk þess að efna til samtals við mikilvæga hagsmunaaðila.

Á vefnum nesvottun.ismá fræðast um umhverfisstarf Snæfellinga, en svæðið var það fyrsta íEvrópu til að hljóta vottun og hefur í dag gullvottun EarthCheck.

Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæfellsbæ
Jakob Björgvin Jakobsson, bæjarstjóri í Stykkishólmsbæ
Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri í Grundarfjarðarbæ
Eggert Kjartansson, oddviti Eyja- og Miklaholtshrepps
Guðrún Reynisdóttir, oddviti Helgafellssveitar
Guðrún Magnea Magnúsdóttir, verkefnisstjóri umhverfisvottunar Snæfellsness
Ragnhildur Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri svæðisgarðsins Snæfellsnes

Grein birtist í Morgunblaðinu þann 11. desember 2018.

Getum við bætt efni síðunnar?