Fara í efni

Tvö ný smit tengd Stykkishólmi - annar aðilinn er í Reykjavík

25.09.2020
Fréttir

Síðasta sólahring hafa greinst tvö ný smit tengd Stykkishólmi, annar einstaklingurinn var í sóttkví í Stykkishólmi en hinn er með lögskráningu í Stykkishólmi en dvelur í Reykjavík. Nú eru því 11 skráðir í einangrun í Stykkishólmi með greind COVID-19 smit, þar af eru tveir einstaklingar sem taka út einangrun í Reykjavík.

Viðbragðsteymi Stykkishólmsbæjar fundar með aðgerðarstjórn og sóttvarnaryfirvöldum á Vesturlandi í hádeginu í dag til þess að fara yfir stöðuna. Frekari frétta er að vænta að fundi loknum.

Getum við bætt efni síðunnar?