Fara í efni

Tvo ný smit greindist í dag (laugardag) - UPPFÆRÐ FRÉTT

26.09.2020
Fréttir

Tvö ný smit greindist síðasta sólarhring í Stykkishólmi. Hvorugur einstaklinganna voru í sóttkví.

Nú eru því 13 skráðir í einangrun í Stykkishólmi með greind COVID-19 smit, þar af eru tveir einstaklingar sem taka út einangrun í Reykjavík. Um 18 eru í sóttkví en smitrakningateymi almannavarna er að störfum og vinnur að því að hafa samband við þá einstaklinga sem þurfa að sæta sóttkví.

Engin teljandi veikindi eru á þeim einstaklingum sem eru með sjúkdóminn í Stykkishólmi eins og staðan er í dag.

PERSÓNUBUNDNAR SMITVARNIR STERKASTA VÖRNIN

Í ljósi þessa eru íbúar enn á ný minntir á  að huga vel að persónubundnum smitvörnum, hafa hægt um sig, fylgjast grannt með þróun mála og forðast eins og hægt er og að koma saman að óþörfu.

Einnig eru íbúar sem hafa einkenni COVID-19 hvattir til að hafa samband símleiðis við heilsugæslustöð sem metur þörf á sýnatöku.

Nánari upplýsingar má annars finna á covid.is.

Getum við bætt efni síðunnar?