Tónleikar og kjör heiðursborgara Stykkishólms
Kór Stykkishólmskirkju heldur 80 ára afmælistónleika laugardaginn 9. nóvember næstkomandi. Flutt verður fjölbreytt dagskrá með tilvísun í kirkjuárið ásamt veraldlegum lögum.
Á tónleikunum verður tilkynnt um kjör bæjarstjórnar á heiðursborgara Stykkishólms og viðkomandi heiðraður með ávarpi og viðurkenningu.
Stjórnandi kórsins er Láslo Petö. Meðleikarar eru feðginin Þórhildur Hólmgeirsdóttir á píanó og Hólmgeir Sturla Þórsteinsson á bassa.
Engin aðgangseyrir er á tónleikana en kórinn tekur á móti frjálsum framlögum, reikningsupplýsingar á staðnum.
Allir hjartanlega velkomnir.