Tilmæli um að forðast óþarfa ferðalög á höfuðborgarsvæðið
Enn hafa engin ný smit greinst í Stykkishólmi, tíu eru enn í einangrun en engin í sóttkví.
Sóttvarnalæknir og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hafa ítrekað tilmæli sín vegna aukins fjöldi smita, einkum á höfuðborgarsvæðinu, vegna Covid-19 síðustu daga og aukið hafa líkur á veldisvexti í faraldrinum. Búast má við að tölur um fjölda smita verði háar næstu daga.
Tilmælin eru;
- Hvetjum alla á höfuðborgarsvæðinu til að vera eins mikið heimavið og kostur er.
- Ekki vera á ferðinni til eða frá höfuðborgarsvæðinu nema nauðsyn sé til.
- Verjum viðkvæma hópa og takmörkum heimsóknir til einstaklinga í áhættuhópum eins og hægt er.
- Takmörkun fjölda í búðum ? einn fari að versla frá heimili ef kostur er
- Hvatt er til þess að þeir sem standi fyrir viðburðum á höfuðborgarsvæðinu fresti þeim
- Klúbbar, kórar, hlaupahópar, hjólahópar og aðrir hópar sem koma saman geri hlé á starfsemi sinni.
- Allir staðir á höfuðborgarsvæðinu þar sem almenningur á erindi herði allar sínar sóttvarnaraðgerðir, takmarki eins og hægt er fjölda, tryggi að allir geti sótthreinsað hendur við innganga, sótthreinsi snertifleti og gæti vel að hægt sé að virða fjarlægðarmörk.
- Íþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu geri hlé á æfingum og keppni í öllum íþróttum.
- Íþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu fresti keppnisferðum út á land.
- Allir sem finni fyrir hinum minnstu einkennum haldi sig heima, fari í sýnatöku og líti á að þeir séu í einangrun þar til neikvæð niðurstaða úr sýnatöku liggi fyrir.