Þuríður Ragna ráðin í stöðu skipulags- og umhverfisfulltrúa
Þuríður Ragna Stefánsdóttir hefur verið ráðin í stöðu skipulags- og umhverfisfulltrúa hjá Sveitarfélaginu Stykkishólmi. Ráðið var í stöðuna á 31. fundi bæjarstjórnar þann 12. desember síðastliðinn og var bókun bæjarstjórnar eftirfarandi: Bæjarstjórn samþykkir, með vísan til fyrirliggjandi gagna, að ráða Þuríði Rögnu Stefánsdóttur tímabundið í starf skipulags- og umhverfisfulltrúa til 31. ágúst 2025.
Þuríður Ragna er landslagsarkitekt og hefur yfir 25 ára reynslu af stöfum í landslagshönnun og skipulagi. Síðastliðin sex ár hefur Þuríður starfað hjá Verkís, aðallega við skipulag, deiliskipulag og aðalskipulag auk annarra hönnunar verkefna. Þuríður sótti menntun til Noregs við Landbúnaðarháskólann í Ås árin 1991-1996 og fékk þar gráðuna Cand. Agric. sem í dag samsvarar Mastersgráðu.
Þuríður Ragna hefur störf hjá sveitarfélaginu 8. janúar næstkomandi.