Fara í efni

Þrettándabrenna í stað áramótabrennu

29.12.2022
Fréttir

Ekki verður að fyrirhugaðri áramótabrennu við Vatnsás á gamlársdag en þess í stað verður mera lagt upp úr þrettándabrennu föstudaginn 6. janúar. Stefnt er að því að efla þréttándagleðina og skapa jafnvel vettvang fyrir fjáröflun fyrir félög eða hópa. Áhugasömum er bent á að hafa samband við tómstunda- og æskulýðsfulltrúa í síma 8648862 eða í netfangið magnus@stykkisholmur.is

Föstudaginn 6. janúar 2023 verður kveikt í þrettándabrennu við Vatnsás í landi Stykkishólms. Fólk er hvatt til þess að  rifja upp gömlu góðu þrettándalögin. Flugeldar og fjör.

Tímasetning verður auglýst þegar nær dregur.

Brenna við Vatnsás
Getum við bætt efni síðunnar?