Fara í efni

Þörf á nýrri og stærri Breiðafjarðarferju

13.11.2020
Fréttir

Breiðarfjarðarferjan Baldur hefur sætt aukinni gagnrýni undanfarið þar sem áhersla er lögð á mikilvægi þess að styrkja þurfi ferjusiglingar um Breiðafjörð með stærri og nýrri ferju til að anna aukinni þörf samfélagsins og vakin athygli á að í ferjunni sé ekki fyrir hendi varavél. Í því sambandi var m.a. haft eftir bæjarstjóra Vesturbyggðar á dögunum að það væri eðlileg krafa að í Baldri sé varavél til að grípa inn í ef eitthvað kemur uppá. Í samtali við RÚV segir bæjarstjóri Vesturbyggðar að atvik í sumar, þegar Baldur varð vélvana úti á Breiðafirði, hafa vakið óhug meðal íbúa. Bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar tekur í sama streng og leggur áherslu á mikilvægi þess að málið verði tekið föstum tökum. Engar kröfur eru hins vegar gerðar lagalega til þess að ferjan beri varavél og samkvæmt Vegagerðinni, sem styrkir rekstur ferjunnar, eru engin áform um breytingar þar á.

Sigurður Viggósson, formaður Samtaka atvinnurekanda á sunnanverðum Vestfjörðum, segir ferjuna of litla og vakti athygli á því í kvöldfréttum stöðvar tvö, 11. nóvember sl., að margoft rúmi ferjan ekki þá bíla sem í hann sækja og verður því að skilja bíla og tæki eftir vegna plássleysis. Sigurður segir mikinn vöxt í atvinnulífi á sunnanverðum Vestfjörðum sem endurspeglist í aukinni þörf á þjónustu Baldurs. Á meðan vegakerfið er ekki betra en raun ber vitni er því þörf á nýjum Baldri sem allra fyrst.

Bæjarráð Stykkishólmsbæjar fundaði í gær, 12. nóvember, og tók þá undir með íbúum og fulltrúum atvinnulífs á sunnanverðum Vestfjörðum þess efnis að styrkja þurfi ferjusiglingar um Breiðafjörð með stærri og nýrri ferju til að anna aukinni þörf samfélagsins. Bæjarráð lagði einnig áherslu á að samningur við Vegagerðina þurfi að vera til lengri tíma en núverandi samningar gera ráð fyrir. 

Getum við bætt efni síðunnar?