Stykkishólmsvegur tekinn í sundur vegna vatnavaxta
Föstudagsmorguninn, 17. febrúar kl. 9:00, verður Stykkishólmsvegur tekinn í sundur vegna vatnavaxta ofan við kirkjugarð, milli Fákaborgar og Hamraenda. Vegurinn verður grafinn í sundur svo hægt sé að endurnýja rör sem hefur fallið saman og helypa þannig vatninu sína leið. Hjáleið um Arnarborg og Nýrækt verður opin á meðan framkvæmdum stendur og ættu því allir sem þurfa að komast leiðar sinnar.