Fara í efni

Stykkishólmsbær auglýsir sumarstörf 2020

16.04.2020
Fréttir

Stykkishólmsbær auglýsir eftir starfsfólki í þjónustumiðstöð og flokksstjórum til að starfa við vinnuskólann sumarið 2020.

Óskað er eftir starfsmönnum til almennra verka í Þjónustumiðstöð og í slátturgengi.

Æskilegt er að umsækjendur fyrir flokkstjóra hafi náð 20 ára aldri og hafi;

  • ríka þjónustulund,
  • góða skipulagshæfileika, geta unnið sjálfstætt og tekið frumkvæði,
  • góða hæfni í mannlegum samskiptum,
  • stundvísi og jákvæðni
  • mikla ábyrgðartilfinningu og síðast en ekki en síst ánægju að því að vinna með og leiðbeina unglingum.

Flokkstjórar stjórna daglegu starfi vinnuflokka skólans og stuðla að reglusemi, ástundun og góðri umgengni starfsmanna. Flokkstjórar vinna með unglingunum og sýna þeim hvernig staðið skuli að verki og leiðbeina um notkun á áhöldum og tækjum.

Vinnutími er frá kl. 8:00-17:00 alla virka daga.

Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2020.

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Dala- og Snæfellsnessýslu.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Jón Beck Agnarsson, verkstjóri Þjónustumiðstöðvar í síma 892-1189, og Ríkharður Hrafnkelsson, mannauðs- og launafulltrúi, í síma 433-8100, en einnig má beina fyrirspurnum á netfangið rikki@stykkisholmur.is.

Umsóknareyðublöð má finna á íbúagátt Stykkishólmsbæjar, en einnig má skila inn umsóknum rafrænt á netfangið rikki@stykkisholmur.is.

Getum við bætt efni síðunnar?