Fara í efni

Starfsmönnum Snoppu óheimilt að fara höndum um sorp

31.03.2020
Fréttir

Starfsmönnum á gámastöðinni Snoppu er nú óheimilt að handfjatla sorp, er þetta liður í því að sporna við frekari útbreiðslu kórónuveirunnar. Innihald grænu tunnunar er nú geymt í tvær vikur áður en vinnsluferli þess hefst.

Á meðan þessu stendur býðst fólki ekki aðstoð frá starfsmönnum við að henda rusli á gámastöðinni. Einnig hefur nytjagámnum verið lokað á meðan þetta ástand varir.

Getum við bætt efni síðunnar?