Starfsfólk óskast á Dvalarheimilið í Stykkishólmi
Dvalarheimili aldraðra óskar eftir að ráða starfsfólk í haust.
Um er að ræða :
- Starf við aðhlynningu frá miðjum ágúst. Starfshlutfall samkomulagsatriði.
- Starf sjúkraliða frá miðjum ágúst. Starfshlutfall samkomulagsatriði.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Kristín Hannesdóttir, forstöðumaður Dvalarheimilis aldraðra, á staðnum, Skólastíg 14, eða í síma 433-8165 alla virka daga.
Umsóknareyðublöð má finna á íbúagátt Stykkishólmsbæjar, en einnig má skila inn umsóknum rafrænt á netfangið krishan@stykkisholmur.is.