Staða forstöðumanns Ásbyrgis í Stykkishólmi laus til umsóknar
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir laust til umsóknar starf forstöðumanns Ásbyrgis, hæfingar - og vinnustöðvar fólks með skerta starfsgetu.
- Leitað er einstaklings með háskólamenntun og eða aðra þá menntun er nýtist í auglýstu starfi
- Viðkomandi hafi til að bera hæfileika til forystu, samvinnu og góðra samskipta og áhuga fyrir starfi með fólki með skerta starfsgetu.
- Góð íslenskukunnátta, stundvísi, vilji og metnaður til að leiða markvert starf í góðri sátt og samleið aðila, - eru mikilvæg viðmið starfsins.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Skriflegar umsóknir um starfið er tilgreini menntun, starfsferil og umsagnaraðila ásamt prófskírteini og sakavottorði berist Sveini Þór Elínbergssyni, forstöðumanni Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga, sem jafnframt veitir frekari upplýsingar - sveinn@fssf.is.
Vefsíða Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga - https://fssf.is/