Fara í efni

Sorphirða í dymbilviku

23.03.2023
Fréttir

Samkvæmt sorphirðudagatali ætti að losa almennt og lífrænt sorp miðvikudaginn 5. apríl nk. Starfsmenn Gámafélagsins koma hins vegar snemma til byggða í apríl og ætla að byrja að losa íbúa við almennt og lífrænt sorp deginum áður, þriðjudaginn 4. apríl.

Íbúum sem sníða venjur sínar eftir sorphiðudagatali Gámafélagsins er því bent á að snjallt væri að tæma lífrænu- og almennuílátin innanhús út í tunnu að kveldi mánudagsins eða snemma á þriðjudeginum.

Getum við bætt efni síðunnar?