Fara í efni

Sóknaráætlun Vesturlands 2020-2024 komin út

06.12.2019
Fréttir

Sóknaráætlun Vesturlands fyrir árin 2020-2024 er komin út. Um er að ræða þróunaráætlun landshlutans sem felur í sér stöðumat hans, framtíðarsýn, markmið og áherslur til að ná fram þeirri framtíðarsýn. Sóknaráætlun Vesturlands byggir á fimm grunnþáttum; velferð, umhverfi, samgöngur, menning og atvinna. Þá voru allir þessir grunnþættir tengdir við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Í áætluninni eru sett fram skýr mælanleg markmið og áherslur sem verða leiðarljós við val á áhersluverkefnum sem og við úthlutun úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands.

Sóknaráætlun Vesturlands fyrir árin 2020-2024 var sett í opið samráðferli þar sem allir gátu sent inn ábendingar og tillögur varðandi áætlunina, markmið hennar og innihald.Því ferli lauk í nóvember og hér má því sjá útkomuna og endanlega áætlun.

 Sóknaráætlun Vesturlands 2020-2024

Getum við bætt efni síðunnar?