Fara í efni

Skólinn hefst á ný

21.08.2019
Fréttir

Á morgun, fimmtudag, fer fram skólasetningGrunnskólans í Stykkishólmi. Athöfnin fer fram kl 10:00 á Amtsbókasafninu.Kennsla hefst svo samkvæmt stundaskrá föstudaginn 23. ágúst kl 08:05.

Miklar framkvæmdir hafa verið á skólalóðinni undanfariðsem gengið hafa vel. Malbikunar- og steypuvinnu er að mestu leyti lokið eneinnig er búið að bæta aðgengi fyrir vörumóttöku með nýrri hurð og ramp upp aðhenni á aftanverðum matsal skólans. Þarf því ekki lengur að keyra mjólkurvörurog fleira upp að aðalinngangi skólans á stórum bílum líkt og hingað tilhefur verið gert.

Enn er minniháttar frágangur eftir á lóðinni semgengið verður frá á komandi dögum og er því óhætt að reikna með ánægðum nemendumað leik á skólalóðinni komandi vetur.


Getum við bætt efni síðunnar?