Skertur opnunartími íþróttamiðstöðvar vegna þorrablóts
Vegna þorrafagnaðar sem haldinn verður í íþróttamiðstöðinni 3. febrúar nk., lokar íþróttamiðstöðin og sundlaugin í Stykkishólmi fyrr en vant er eftirtalda daga.
- Fimmtudaginn 1. febrúar lokar kl. 19:00
- Föstudaginn 2. febrúar lokar kl. 18:00
- Laugardaginn 3. febrúar lokar kl. 14:00
Minnt er á að 30 mín fyrir lokun er ekki tekið við fleiri sundlaugargestum.