Rotþrær í Helgafellssveit tæmdar
Með sameiningu Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar bættist fjöldi nýrra verkefna á starfsmenn sveitarfélagsins. Unnið er nú að einu slíku en þessar dagana standa starfsmenn Þjónustumiðstöðvar í ströngu við að tæma allar rotþrær í Helgafellssveit. Gert er ráð fyrir að því verkefni verði lokið fyrir næstu helgi.