Fara í efni

Roni Horn ásamt Bergþóru Snæbjörnsdóttur og Kristínu Önnu í Vatnasafni

03.09.2019
Fréttir

Laugardaginn 7. september verða tónleikar og upplestur íVatnasafni í Stykkishólmi. Bergþóra Snæbjörnsdóttir mun hefja dagskrána meðupplestri síðan mun Kristín Anna halda tónleika og sjálf Roni Horn líkur svodagskránni með upplestri.
Bergþóra Snæbjörnsdóttir les upp úr nýrriskáldsögu sem kemur út í haust. En hún vann að henni meðan hún dvaldi írithöfundaíbúð Vatnasafnsins árið 2018. Sagan gerist að hluta til íStykkishólmi og á Breiðafirði.

Kristín Anna, fyrrum söngkona hljómsveitarinnar Múm, munflytja lög af plötu sinni I Must Be The Devil sem kom út á Bel-Air Glamoursíðasta vor, en útgáfan er rekin af listamönnunum Ragnari Kjartanssyni ogIngibjörgu Sigurjónsdóttur.

Vatnasafnið er sköpunarverk Roni Horn sem fæddist í Bandaríkjunum árið 1955 ogbýr í New York. Hún lauk myndlistarnámi frá Rhode Island School of Design árið1975 og stundaði síðan meistaranám við Yale háskóla, þaðan sem hún útskrifaðist1978. Hún hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir verk sín, sem spanna alltfrá skúlptúrum til bóka eða ljósmynda innsetninga. Sýningaferill hennar hófstum 1980 og hafa verk hennar verið sýnd víða um heim, meðal annars í stórum,alþjóðlegum söfnum.

Roni Horn hefur heimsótt Ísland reglulega síðan á miðjumáttunda áratugnum, þegar hún kom hingað sem ungur listnemi. Hún hefur ferðastmeira um landið en margur annar og sótt innblástur í náttúru Íslands í mörgum af sínum þekktustu verkum.

Sem áður segir líkur Roni Horn dagskránni á laugardagskvöldinumeð upplestri. Viðburðurinn hefst kl. 20:30 og er aðgangur ókeypis og allir boðnir hjartanlega velkomnir.


Getum við bætt efni síðunnar?