Fara í efni

Réttindi til nýtingar sjávargróðurs við Landey til leigu

13.09.2019
Fréttir

Stykkishólmsbær auglýsir hér með til leigu réttindi  til nýtingar sjávargróðurs við Landey við Stykkishólm á  svæði sem afmarkað er á meðfylgjandi mynd.

Réttindin verða leigð með þeim skilyrðum að sjávargróðurinn verði nytjaður á sjálfbæran hátt, nytjum verði í hvívetna hagað í samræmi við lög og reglur sem um nýtingu sjávargróðurs gilda á hverjum tíma og að gengið verði vel um svæðið.

Endurgjald fyrir afnotin skal greidd skv. blautvigt og vera sambærileg og greitt er fyrir þangtekju á Breiðafirði á hverjum tíma.

Umsóknarfrestur er til 22. september næstkomandi.

Getum við bætt efni síðunnar?