Fara í efni

Reglur um sóttkví gilda líka í sveitinni

26.03.2020
Fréttir

Sumarhúsafólk

Reglur um sóttkví gilda líka í sveitinni

Að gefnu tilefni er vakin athygli á því að reglur um sóttkví gilda líka um þá sem kjósa að dvelja í sumarhúsi á meðan sóttkví stendur.

? Einstaklingar í sóttkví mega ekki fara sjálfir eftir aðföngum og þar af leiðandi ekki í matvöruverslanir. 

? Einstaklingar í sóttkví mega ekki fara sjálfir með sorp á móttökustöðvar sveitarfélaga. 

? Einstaklingar í sóttkví mega fara í göngutúra en verða skilyrðislaust að halda reglur um fjarlægð frá öðrum.

Vinnum saman og hindrum frekari útbreiðslu smita. 
Athygli er vakin á því að brot á reglum um sóttkví varða við lög.

Getum við bætt efni síðunnar?