Fara í efni

Opinn kynningarfundur vegna deiliskipulags á Skipavíkursvæði

03.03.2023
Fréttir

Opinn kynningarfundur verður haldinn miðvikudaginn 8. mars, kl. 17:00-18:00 á Amtsbókasafninu í Stykkishólmi. Á fundinum gera Kristín Þorleifsdóttir, skipulagsfulltrúi og Bæring Bjarnar Jónsson, skipulagsráðgjafi, grein fyrir vinnu vegna deiliskipulags hafnarsvæðis við Skipavík.

Að lokinni kynningu verður opið fyrir umræður og ábendingar. Fundarstjóri verður Hilmar Hallvarðsson, formaður skipulagsnefndar.

Áhugasamir eru hvattir til að mæta á fundinn.

Fundurinn fer fram á Amtsbókasafninu
Getum við bætt efni síðunnar?