Fara í efni

Opið hús vegna skipulagslýsingar fyrir Skipavíkursvæðið

12.12.2022
Fréttir

Miðvikudaginn 14. desember eftir hádegi verður opið hús á skrifstofu umhverfis- og skipulagssviðs á 2. hæð í Ráðhúsinu frá kl. 12:00 til kl. 17:00 vegna fyrirhugaðrar deiliskipulagsgerðar fyrir hafnarsvæðið við Skipavík. Kristín Þorleifsdóttir, skipulagsfulltrúi, verður á staðnum og svarar spurningum og tekur við ábendingum.

Skipulagslýsinguna má sjá hér og á bæjarskrifstofunni. Ábendingar varðandi lýsinguna skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa til og með 6. janúar 2023 að Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi eða á netfangið: skipulag@stykkisholmur.is

Opið hús á skrifstofu umhverfis- og skipulagssviðs á 2. hæð í Ráðhúsinu í Stykkishólmi.
Getum við bætt efni síðunnar?