Opið fyrir umsóknir í Lóu, nýsköpunarsjóð
Vakin er athygli á að nú hefur verið opnað fyrir umsóknir í Lóu, nýsköpunarsjóð sem ætlaður er nýsköpunarverkefnum á landsbyggðinni.
Sjóðurinn er í höndum Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins. Áherslur Lóu árið 2023 eru verkefni sem komin eru af byrjunarstigi og tengjast samfélagslegum áskorunum á borð við loftslagsmál, sjálfbærni í heilbrigðis- og menntamálum og sjálfbærni í matvælaframleiðslu.
Heildarfjárhæð sjóðsins í ár er 100 milljónir og getur hvert verkefni fengið að hámarki 20% af heildarúthlutun sjóðsins.
Umsóknarfrestur er til 27. mars. Áhugasamir geta leitað til atvinnuráðgjafa SSV.
Á vefsíðu Stjórnarráðs Íslands má finna nánari upplýsingar um sjóðinn.