Opið fyrir skráningu í Vinnuskólann 2024
Sveitarfélagið Stykkishólmur býður ungmennum með lögheimili í sveitarfélaginu sumarvinnu í Vinnuskólanum.
Opið er nú fyrir skráningar í vinnuskólann sumarið 2024. Vinnuskólinn er fyrir ungmenni fædd árin 2007, 2008, 2009 2010 og 2011.
Hægt er að skrá sig í vinnuskólann á íbúagáttinni. Skráningablöð er einnig hægt að nálgast og skila til skólaritara GSS og í móttöku Ráðhússins að Hafnargötu 3. Skráningu skal skilað, fyrir mánudaginn 3. júní 2024. Mikilvægt er að fylla skráningarformin út samviskusamlega.
Vinnuskólinn býður fyrst og fremst upp á hefðbundin umhirðustörf og að auki aðstoð á leikjanámskeiðum. Markmið Vinnuskólans er að undirbúa ungmenni fyrir vinnu áður en haldið er út á hinn almenna vinnumarkað og skapa hollt og uppbyggjandi vinnuumhverfi fyrir ungmenni. Lögð er áhersla á jákvæð samskipti, ástundun, vinnusemi og virðingu gagnvart vinnu, vinnufélögum, yfirmönnum og íbúum. Einnig eru kynnt grundvallaratriði í vinnubrögðum og notkun verkfæra.
Vinnutími og launakjör
Unnið er alla virka daga mánudag – föstudag (nema sérstaklega sé samið um annað). Stjórnendur Vinnuskólans munu endurskoða vinnutíma og vinnutímabilið með hliðsjón af fjölda umsókna og verður tilkynnt eins fljótt og auðið er ef breytingar verða. Undanfarin á hefur vinnutímabilið lengst. Stefnt er að eftirfarandi lágmarks vinnutíma:
Árgangar |
Laun kr/klst. |
Vinnutímabil |
Vinnutími |
2006 (18 ára) |
2.660.- |
6. júní - 16. ágúst |
7 klst. á dag í 10 vikur, 8:00-16:00 |
2007 (17 ára) |
2.149.- |
6. júní - 16. ágúst |
7 klst. á dag í 10 vikur, frá 8:00-16:00 |
2008 (10. bekkur) |
2.014.- |
6. júní - 16. ágúst |
7 klst. á dag í 10 vikur, frá 8:00-16:00 |
2009 (9. bekkur) |
1.656.- |
6. júní - 16. ágúst |
7 klst. á dag í 10 vikur, frá 8:00-16:00 |
2010 (8. bekkur) |
1.349.- |
6. júní - 16. ágúst |
4 til 7 klst. á dag í 6 til 10 vikur, á tímabilinu 8:00-16:00 |
2011 (7. bekkur) |
1.063.- |
6. júní - 16. ágúst |
4 til 7 klst. á dag í 6 til 10 vikur, á tímabilinu 8:00-16:00 |
Haldinn verður kynningarfundur með umsækjendum áður en starfsemin hefst þar sem flokkstjórar eru kynntir, farið er yfir helstu verkefni sumarsins, skiptingu hópa og vinnu- og öryggisreglur.
Vinnuskólinn hefst fimmtudaginn 6. júni 2024, mæting við Þjónustumiðstöðina að Nesvegi 7, kl. 8:00 stundvíslega.