Fara í efni

Opið fyrir skráningu í Vinnuskóla Stykkishólmsbæjar

20.05.2022
Fréttir

Stykkishólmsbær býður ungmennum með lögheimili í Stykkishólmi sumarvinnu í Vinnuskólanum. 
Opnað hefur verið fyrir skráningu fyrir sumarið 2022. Vinnuskólinn er fyrir ungmenni fædd árin 2005, 2006, 2007, 2008 og 2009. 

OPIÐ FYRIR SKRÁNINGAR TIL 3. JÚNÍ

Á íbúagátt Stykkishólmsbæjar má með einföldum og fljótlegum hætti skrá sig vinnuskólann. Undir "umsóknir" er farið í "umsókn um atvinnu í vinnuskólanum", formið fyllt út og smellt á "senda umsókn". Hægt er að hafa samband við Ráðhús Stykkishólmsbæjar til að fá aðstoð við að senda inn umsókn, að öðrum kosti er hægt að nálgast umsóknarblað í Ráðhúsinu og fylla út. Skráningu skal skilað inn fyrir 3. júní 2022, mikilvægt er að fylla skráningarform út samviskusamlega.

Vinnuskólinn býður fyrst og fremst upp á hefðbundin umhirðustörf og að auki aðstoð á leikjanámskeiðum. Markmið Vinnuskólans er að undirbúa ungmenni fyrir vinnu áður en haldið er út á hinn almenna vinnumarkað og skapa hollt og uppbyggjandi sumarstarf fyrir ungmenni í Stykkishólmsbæ. Lögð er áhersla á samskiptareglur, ástundun, vinnusemi og virðingu gagnvart vinnu, vinnufélögum, yfirmönnum og bæjarbúum. Einnig eru kynnt grundvallaratriði í vinnubrögðum og notkun verkfæra. 

VINNUTÍMI OG LAUNAKJÖR

Unnið er virka daga mánudag ? föstudag, nema sérstaklega sé samið um annað. Stjórnendur Vinnuskólans munu endurskoða vinnutíma eða vinnutímabilið með hliðsjón af fjölda umsókna. Undanfarin ár hefur vinnutímabilið lengst miðað við fyrstu áætlanir. Stefnt er að eftirfarandi lágmarks vinnutíma:

Árgangar

Laun kr/klst.

Vinnutímabil

Vinnutími

2005

1.970.-

7. júní - 12. ágúst

7 klst. á dag í 10 vikur frá 8:00 til 16:00

2006 ( 10. bekkur)

1.873.-

7. júní - 12. ágúst

7 klst. á dag í 10 vikur frá 8:00 til 16:00

2007 ( 9. bekkur)

1.517.-

7. júní - 12. ágúst

7 klst. á dag í 10 vikur frá 8:00 til 16:00

2008 ( 8. bekkur)

1.236.-

7. júní - 15. júlí

4 klst. á dag í 6 vikur frá 8:00 til 12:00

2009 ( 7. bekkur)

974.-

7. júní - 15. júlí

4 klst. á dag í 6 vikur frá 8:00 til 12:00

 

Haldinn verður kynningarfundur með umsækjendum áður en starfsemin hefst  þar sem flokkstjórar eru kynntir, farið er yfir helstu verkefni sumarsins, skiptingu hópa og vinnu- og öryggisreglur.

Vinnuskólinn hefst þriðjudaginn 7. júni 2022, mæting við Þjónustumiðstöð, Nesvegi 7 kl. 8:00 stundvíslega. 

Getum við bætt efni síðunnar?