Fara í efni

Nýrækt 12 og 14 og Móholt 14-16 lausar til úthlutunar (Móholt 14-16 auglýst aftur með 50% lækkun á gatnagerðargjöldum)

28.03.2019
Fréttir

Lóðirnar Nýrækt 12 og 14 eru auglýstar til úthlutunar íStykkishólmi ásamt Móholti 14-16 sem er auglýst aftur en nú meðtímabundinni 50% lækkun á gatnagerðargjöldum. 

Bæjarstjórn Stykkishólmbæjar samþykkti á fundi sínum 28. mars sl. tímabunda 50% lækkun á gatnagerðargjöldum á lóðinni Móholt 14-16 (íbúðarhúsnæði)skv. 6. gr. laga nr. 153/2006, sbr. og 6. gr. samþykkta umgatnagerðargjald í Stykkishólmsbæ, m.v. gjaldskrá 2019 á lóðinni Móholt14-16 Stykkishólmsbæ og að lækkunarheimildin taki gildi eftir samþykktbæjarstjórnar til og með 31.12.2019. Umrædd samþykkt er ekki afturvirkog skal umsækjandi greiða 150.000 kr. staðfestingargjald.Staðfestingargjald er óafturkræft verði umsækjanda úthlutað viðkomandilóð. Afslátturinn gildir frá og með auglýsingu þessari, en lóðin erauglýst aftur í samræmi við reglur um úthlutun á lóðum fyrir íbúðar- ogatvinnuhúsnæði í samræmi við afgreiðslu bæjarráðs/bæjarstjórnar. Sjá nánar um skipulag og skilmála hér.


Jafnframt eru lóðirnar að Nýrækt 12 og 14 auglýstar til úthlutunar, en þær eru á svæði fyrir frístundabúskap. Sjá nánar um skipulag svæðisins og skilmála hér.

 

Umsóknarfrestur er 10 dagar, sbr. reglur um úthlutun á lóðum fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði í Stykkishólmsbæ. 

Nánari upplýsingar má finna á vefStykkishólmbæjar og þá veitir skipulags- og byggingarfulltrúiStykkishólmsbæjar allar nánari upplýsingar í síma 433-8100 eða í RáðhúsiStykkishólmsbæjar.
Jafnframt er vakin athygli öðrum lausum lóðum sem áður voru auglýstar ogskráðar eru á úthlutunarlista Stykkishólmbæjar sem finna má hér.

Getum við bætt efni síðunnar?