Fara í efni

Niðurstöður kosninga í dreifbýlisráð

25.09.2023
Fréttir

Úrslit úr kosningum í dreifbýlisráð liggja fyrir. Aðalmenn eru Lára Björg Björgvinsdóttir og Álfgeir Marinósson, varamenn eru Guðrún K. Reynisdóttir og Guðmundur Hjartarson. Þá hefur jafnframt verið greint frá því að Ragnar Ingi Sigurðsson verði fulltrúi bæjarstjórnar í dreifbýlisráði.

Seinni kjörfundur fór fram í Félagsheimilinu Skildi í Helgafellssveit á laugardaginn var en fyrri kjörfundur var 9. september. Kosningarétt höfðu íbúar innan sveitarfélagamarka Helgafellssveitar eins og þeim er lýst á sveitarfélagakorti Landmælinga Íslands frá 2014 og íbúar með búsetu í Ögri. Kjörgengir í dreifbýlisráð voru þeir sem hafa skráð lögheimili í þeim hluta sveitarfélagsins.

Getum við bætt efni síðunnar?