Fara í efni

Nafnasamkeppni fyrir Miðstöð öldrunarþjónustu

10.10.2023
Fréttir

Síðastliðinn sunnudag bauð Miðstöð öldrunarþjónustu til grillveislu að Skólastíg 14. Veislan heppnaðist vel og var margt um manninn. Í veislunni var nafnasamkeppni fyrir miðstöðina sett í loftið sem stendur opin til og með næsta sunnudags, 15. október.

Hvað viljum við kalla þjónustu- og félagsmiðstöðina sem hér verður mótuð og starfrækt í þeim tilgangi að gott sé að eldast í sveitarfélaginu Stykkishólmi?

Tillögum verður safnað til sunnudagsins 15. október en þá tekur nefnd velja álitlegustu tillögurnar sem verður svo kosið úr. Kosningarnar verða auglýstar þegar nær dregur. Smelltu á hnappinn hér að neðan til að senda inn þína tillögu.

Nafnasamkeppni

Frá opnunarhátíð. Mynd: Guðrún Ákadóttir
Getum við bætt efni síðunnar?